Maður í haldi, bíll í rannsókn

Lögreglubíll sést hér á slysstað í gærkvöldi.
Lögreglubíll sést hér á slysstað í gærkvöldi. Víkurfréttir/Þorgils

Maður er í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum, grunaður um að hafa ekið á lítinn dreng í Reykjanesbæ í gær og flúið af vettvangi. Lögregla rannsakar nú bifreið þess sem er í haldi. Annar maður var handtekinn strax í gær vegna rannsóknarinnar, en honum var sleppt í dag.

Drengurinn, sem ekið var á í gær, er fjögurra ára. Hann liggur á gjörgæsludeild Landspítala - háskólasjúkrahúss í Reykjavík og er haldið sofandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert