Rjúpnaveiði dræmari en í fyrra

stækka

mbl.is/Ingólfur

Eftir Guðna Einarsson

Rjúpnaveiðin var almennt dræm á nýliðnu rjúpnaveiðitímabili, en því lauk í gær. Leyfðar voru veiðar í 18 daga í nóvember en bannað var að veiða frá mánudegi til miðvikudags í viku hverri.

Náttúrufræðistofnun Íslands hvetur rjúpnaveiðimenn til að skila þangað vængjum af veiddum rjúpum í þágu rannsókna. Undir lok veiðitímans höfðu fáir vængir skilað sér.

Áki Ármann Jónsson, forstöðumaður veiðistjórnunarsviðs Umhverfisstofnunar (UST), sagði að sér sýndist rjúpnaveiðin hafa verið treg og heldur minni en í fyrra. Það markaði hann af færslum í rafræna veiðidagbók UST og eins af orðum veiðimanna.

Þetta er þriðja árið sem rjúpnaveiðimönnum býðst að færa veiði sína í rafrænu veiðidagbókina. Áki sagði færslurnar sýna að laugardagar væru tvöfalt vinsælli til veiða en sunnudagar og svo hefði verið öll árin.

Bann við sölu á rjúpum og rjúpnaafurðum hefur skilað ótrúlega góðum árangri, að mati Áka. Hann sagði að á skilavef veiðiskýrslna byðist skotveiðimönnum að taka þátt í skoðanakönnun. Eftir síðasta veiðiár bauðst mönnum að merkja við hvort þeir neyttu sjálfir rjúpna sem þeir veiddu, gáfu þær eða seldu. Menn sem veiddu samtals um 42 þúsund rjúpur árið 2006 svöruðu könnuninni. Þar af höfðu um 33.500 rjúpur farið til eigin neyslu veiði manna, um 7.800 rjúpur höfðu verið gefnar en aðeins 726 rjúpur verið seldar.

Ólafur Karl Nielsen, fuglafræðingur og rjúpnasérfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, sagði að almennt hefði rjúpnaveiðin verið mjög treg í haust. Menn segðu sömu sögu hringinn í kringum landið, þeir hefðu séð mjög lítið af rjúpu og náð fáum.

Ólafur taldi þetta að einhverju leyti helgast af því að veiðar byrjuðu seinna nú en venjulega. Dagur orðinn styttri og búið að snjóa í fjöll þegar veiðin hæfist. Því var viðbúið að fuglinn væri eitthvað dreifðari. Einnig hefði viðrað illa til veiða suma daga sem veiðar voru leyfðar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »
Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði. Hymer eru eins...
Til sölu vespa
Til sölu mjög vel með farin Znen 50 QT 11C tvígengis vespa. Ekin aðeins 3.200 ...
Eikarhurð
Eikarhurð til sölu, 80 cm, karmur fylgir og læsing, nýleg hurð. Vinsamlega sen...
Yndislegur HRFÍ Maltese hvolpur til sölu
7 mánaða gamall og með ættbók frá HRFÍ. Foreldrar eru Alþjóða- og íslenskir meis...
 
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Framhalds uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Deiliskipulag á grundartanga

Deiliskipulag á Grundartanga Austur...