Mikil aukning í sjúkraflugi á Akureyri

Slökkvilið Akureyrar hefur farið í 452 sjúkraflug það sem af er þessu ári, en það er sami fjöldi og allt árið í fyrra. Að sama skapi hefur sjúklingum fjölgað í sjúkraflugi en á þessum tíma í fyrra höfðu verið fluttir 423 sjúklingar en nú hafa verið fluttir 490 sjúklingar það sem af er árinu.

Slökkvilið Akureyrar hefur stundað sjúkraflug allt frá því 1997 en þá voru sjúkraflug 77 talsins. Fjöldi ferða jókst jafnt og þétt fram til ársins 2003 en þá voru þau orðin 271 á ársgrundvelli. Á milli áranna 2005 og 2006  fjölgaði   sjúkraflugum um 138.

Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri sendir lækni með í þau flug sem þess er óskað og Mýflug sér um flugvélakost og flugmenn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert