Eru þríburafæðingar paranna tilviljun ein?

Frjósemisgoðið öfluga. stækka

Frjósemisgoðið öfluga.

Morgunblaðið Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is

Frjósemisgoð frá Dóminíska lýðveldinu er grunað um að vera valt að einstakri frjósemi tveggja ungra íslenskra para. Vúdúgaldrar tengjast menningu landsins töluvert, en þeir eru upprunnir á Haítí, sem á landamæri að Dóminíska lýðveldinu.

Árið 2003 voru Ása Einarsdóttir og Birgir Már Guðbrandsson þar í sumarfríi og keyptu frjósemisgoð af sölumanni sem staðfesti virkni þess.

„Þetta var á útimarkaði, hann átti sjálfur 10 börn og fullvissaði þau um að þetta myndi svínvirka,“ segir Níní Jónsdóttir, en Ása og Birgir gáfu henni og manni hennar, Kristni Erni Sverrissyni, goðið upp á grín, þar sem þau vissu að þau stefndu á barneignir. Þá var Níní reyndar þegar orðin ófrísk að fyrsta barni þeirra hjóna.

Árið 2005 fór Níní í frjósemismeðferð til að eignast fleiri börn, og í maí ári seinna eignuðust þau þríbura. Börnin eru öll heilbrigð, allt gekk mjög vel og hjónin tengdu frjósemisgoðið svo sem ekki endilega við barnagæfuna á þessu stigi málsins, þar sem fleirburar eru ekki óalgengir þegar um frjósemismeðferðir er að ræða.

Goðinu skilað við góðan árangur

Þau ákváðu samt til öryggis að skila goðinu til Birgis og Ásu, enda þótti þeim nóg komið.

„Maðurinn minn hélt ræðu í brúðkaupinu þeirra, afhenti Birgi goðið og sagði að við værum búin að eignast fjögur börn á tveimur og hálfu ári og nú væri komið að þeim,“ segir Níní.

Ekki var að spyrja að afleiðingunum, því Ása var orðin ófrísk að þríburum mánuði seinna, á eðlilegan hátt og án frjósemislyfja.

„Þetta var náttúrlega nett áfall, maður býst ekki við að fá þríbura í fyrstu tilraun, en við þökkuðum Kidda og Níní bara pent fyrir gjöfina,“ segir Ása og hlær, enda hæstánægð með barnalánið. Hún á von á þríburunum hinn 19. desember næstkomandi. Foreldrunum frjósömu þykir þetta allt mjög ótrúlegt og ekki laust við að þau trúi orðum sölumannsins barnmarga, sem ef til vill hefur notað vúdúgaldra til að auka virkni goðsins.

Birgir og Ása eru nú að reyna að koma goðinu góða frá sér með öllum ráðum. „Við ætlum að reyna að afhenda goðið við aðstæður þar sem fólk getur ekki neitað að taka við því, ætli næsta barnlausa par sem býður okkur í brúðkaupið sitt fái það ekki bara,“ segir Ása, sem segir jafnframt að ættingjar og vinir séu logandi hræddir um að fá goðið í jólapakkann í ár.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »
Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

Prófa viðvörunarboð í farsíma

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...
10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
TOYOTA PRIUS 7/2008 EKINN 64000 KM
Ti sölu mjög gott eintak af Prius,einn eigandi 100% þjónusta áett verð 2.790.000...
Gott hjól á góðu verði
Til sölu Honda VTX1300R árg 2004 Nýleg dekk, ný smurt og nýlegir bremsuklossar....
 
Aðalfundur búmanna hsf

Aðalfundur Aðalfundur Búmanna hsf. ver...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...