Herflugvélar í eftirliti hér kunna að vera vopnaðar
Bandarískar orrustuflugvélar. AP
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, sagði á Alþingi í dag, að þeim þjóðum, sem munu taka þátt í loftrýmiseftirliti við Ísland, væri í sjálfsvald sett hvort orrustuflugvélar þeirra beri vopn í eftirlitsflugi. Orrustuflugvélar Frakka eru að jafnaði vopnaðar í eftirlitsflugi en ekki vélar Breta og Bandaríkjamanna.
Ingibjörg Sólrún var að svara fyrirspurn frá Steingrími J. Sigfússyni, þingmanni VG, um hvort fyrir lægi að erlendar orrustuflugvélar, sem ríkisstjórnin hyggist fá hingað til loftrýmiseftirlits eða æfinga, muni bera vopn.
Steingrímur lýsti yfir miklum vonbrigðum með þessar upplýsingar og sagði að um væri að ræða afturför frá því sem var undir lok veru Bandaríkjamanna hér.
Ingibjörg Sólrún sagði að gert væri ráð fyrir að hér væru tiltækar geymslur fyrir vopn vélanna þegar þær flygju án þeirra. Til dæmis flygju eftirlitsvélar Breta og Bandaríkjanna ekki vopnaðar en vélar Frakka og Spánverja væru ævinlega vopnaðar í eftirlitsflugum. Sama gilti um vélar Norðmanna og Dana þegar flogið væri í veg fyrir ókunnar flugvélar en ekki ef um æfingar væri að ræða.
Frakkar hefja eftirlitið í vor og sagði Ingibjörg Sólrún, að væntanlega myndu þeir nota Mirage 2000 þotur. Þær væru vopnaðar tveimur 30 millimetra fallbyssum og 9 flugskeytum. Bandaríkjamenn, sem munu sjá um eftirlitið síðari hluta næsta árs, myndu væntanlega nota F-15 orrustuþotum. Þær væru yfirleitt búnar 20 mm fallbyssu og 8 flugskeytum af Sidewinder- og Sparrow-gerðum.
Norðmenn og Pólverjar munu nota F-16 orrustuflugvélar, sem eru búnar 20 millimetra fallbyssum og 6 flugskeytum af sömu gerðum og eru í F-15 flugvélum. Þá hafa Spánverjar lýst áhuga á loftferðaeftirliti hér. Ef af yrði myndu þeir væntanlega nota Eurofigher orrustuvélar, sem eru búnar 27 flugskeytum auk 13 flugskeytum af mismunandi gerð.
Ingibjörg Sólrún sagði, að æfingar í vopnanotkun, í þeim skilningi að hleypt verði af vopnum, verði ekki leyfðar á íslensku yfirráðasvæði enda standi slíkar æfingar ekki til.
Bloggað um fréttina
-
Bjartmar Oddur Þ Alexandersson Hættu Steingrímur! -
Snorri Magnússon Enn og aftur...
Innlent »
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 8. ágúst 2007, Innlent Norðmenn taka þátt í varnaræfingu á Íslandi
- Mánudagur, 16. júlí 2007, Innlent Varnir æfðar með Bandaríkjaher í næsta mánuði
- Mánudagur, 5. maí 2008, Innlent Sjónarspil í háloftunum
- Þriðjudagur, 6. maí 2008, Innlent Koma Frakka liður í Evrópuvæðingu öryggismála Íslands
- Þriðjudagur, 21. október 2008, Innlent Rice og Ingibjörg ræddu saman
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...




































