Kennari dæmdur fyrir kynferðisbrot gegn nemanda
Héraðsdómur Norðurlands vestra hefur dæmt karlmann í 15 mánaða skilorðsbundið fangelsi, en maðurinn átti í kynferðissambandi við stúlku á unglingsaldri, sem var nemandi hans í grunnskóla. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 500 þúsund krónur í bætur.
Maðurinn var dæmdur samkvæmt ákvæði almennra hegningarlaga um að sá sem hefur samræði eða önnur kynferðismök við barn yngra en 18 ára, sem honum hefur verið trúað fyrir til kennslu eða uppeldis, skuli sæta fangelsi allt að 8 árum og allt að 12 árum sé barnið yngra en 16 ára.
Fram kemur í niðurstöðu fjölskipaðs héraðsdóms, að samband kennarans og stúlkunnar stóð frá árinu 2003, þegar stúlkan var 13 ára og til ársins 2006. Þar segir einnig, að með því að taka upp kynferðislegt samband við nemanda sinn, sem varði í langan tíma, hafi maðurinn framið alvarlegt trúnaðarbrot, sem þung refsing liggi við að lögum.
Manninum verði hins vegar virt til mikilla málsbóta, að gagnkvæmt ástarsamband hafi verið á milli hans og stúlkunnar og hann hafi lýst því, að fyrir sitt leyti hefði hann viljað halda því áfram og gera það opinbert. Því ákvað dómurinn að skilorðsbinda refsinguna að fullu.
Fram kemur í dómnum, að stúlkan bar að á tímabili hafi hún talið sig vera ástfangna af manninum þótt hún hafi varla vitað hvað var að gerast, enda hafi hlutirnir gerst hratt á þessum tíma. En nú, þegar hún hafi fengið utanaðkomandi aðstoð, viti hún að þetta hafi ekki verið nein ást.
Dómurinn sagði ljóst, að samband stúlkunnar og kennarans hafi haft áhrif á tilfinningalega líðan hennar og valdið henni félagslegum erfiðleikum. Því væri maðurinn bótaskyldur gagnvart henni.
Innlent »
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 19. júní 2008, Innlent Fimmtán mánuðir fyrir kynferðisbrot gegn nemanda
- Föstudagur, 7. desember 2007, Innlent 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot
- Föstudagur, 17. október 2008, Innlent Fékk stúlku til að afklæða sig framan við vefmyndavél
- Fimmtudagur, 15. febrúar 2007, Innlent Dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn systurdóttur sinni
- Fimmtudagur, 14. ágúst 2008, Innlent Sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































