Landspítali eflir bráðaþjónustuna
Landspítali og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins segja í sameiginlegri yfirlýsingu, að kröftum lækna í framhaldsnámi á slysa- og bráðasviði Landspítala verði frá og með 15. janúar beint að því að efla bráðaþjónustuna innan spítalans enn frekar í stað þess að ganga vaktir á neyðarbíl slökkviliðsins.
Segir í yfirlýsingunni, að mikil fjölgun háskólamenntaðra bráðatækna hjá SHS hafi gert þessa breytingu mögulega án þess að bráðaþjónustan utan spítalans skerðist. Í tengslum við breytinguna muni Landspítali og SHS leitast við að styrkja samstarf sitt enn frekar til að tryggja gæði bráðaþjónustunnar á vettvangi slysa og bráðra veikinda.
„Skipulagsbreytingin er gerð með vitneskju og eftir atvikum samráði þeirra sem best þekkja til bráðaþjónustu innan og utan stofnana, landlækni, Sjúkraflutningaskólans, SHS og sérfræðinga spítalans. Tugir þúsunda leita árlega til bráðamóttökunnar og er von slysa- og bráðasviðs Landspítala sú að með þessu móti verði unnt að koma betur til móts við þarfir þeirra. Störf lækna sem koma á slysa- og bráðasviðið til framhaldsnáms og þjálfunar eru bráðaþjónustunni innan Landspítala afar mikilvæg.
Fjarvera þeirra vegna reglulegra vakta á sjúkrabílum hefur óneitanlega valdið auknu álagi á annað starfsfólk í bráðaþjónustu spítalans en þeim fjölgar sífellt sem þurfa á þjónustunni að halda.
Bráðatæknar hjá SHS hljóta menntun sína í Bandaríkjunum þar sem hefð er fyrir því, eins og víðar, að bráðatæknar annist bráðaþjónustu utan stofnana. Mikil áhersla er hins vegar lögð á samskipti viðbragðsaðila á vettvangi og sérfræðinga á slysadeild á meðan verið er að koma sjúklingi undir læknishendur og hyggjast Landspítali og SHS styrkja þann þátt í samstarfi sínu. Enn fremur verður samstarf aðila um gæðaeftirlit og símenntun sjúkraflutningamanna eflt enn frekar. Þátttaka í störfum á vettvangi við hlið sjúkraflutningamanna verður eftir sem áður hluti af þjálfun lækna í framhaldsnámi í bráðalækningum," segir í yfirlýsingunni.
Innlent »
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. febrúar 2008, Innlent Conscriptor bauð lægst í ritun sjúkraskráa
- Föstudagur, 21. september 2007, Innlent Sjúklingum á Landspítala fjölgaði um 22% á sex árum
- Miðvikudagur, 24. október 2007, Innlent Í skuld við Landspítala
- Fimmtudagur, 13. september 2007, Innlent Vinnuhópur skipaður um skipulag sjúkraflutninga
- Þriðjudagur, 22. júlí 2008, Innlent Landspítali semur við Harvard
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...




































