28% óku of hratt um Gullteig

Brot 25 ökumanna voru mynduð á Gullteig eftir hádegi í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullteig í suðurátt að Laugateig. Á einni klukkustund fóru 90 ökutæki þessa akstursleið og því ók rúmlega fjórðungur ökumanna, eða 28%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var tæplega 44 km/klst en þarna er 30 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók var mældur á 55. Eftirlit lögreglunnar á Gullteig kom í kjölfar ábendinga íbúa um hraðakstur í götunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert