Álag hefur minnkað

Þetta fótboltamark er meðal þess sem hefur fokið í óveðrinu.
Þetta fótboltamark er meðal þess sem hefur fokið í óveðrinu. mbl.is/Brynjar Gauti

Álag í Samhæfingarmiðstöðinni í Skógarhlíð hefur minnkað aðeins sl. klukkustund en nú hafa á níunda tug beiðna um aðstoð borist. Vel gengur að sinna þeim en um 130 björgunarsveitarmenn eru við störf ásamt lögreglu og slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.

Þessa stundina er mest um hvers kyns fok auk þess sem vatn er farið að safnast í kringum niðurföll.
 
Tilkynning frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur fólk til að vera ekki á ferli að nauðsynjalausu. Þegar hafa foreldrar grunnskólabarna verið beðnir um að halda börnum sínum heima. Ennfremur er því beint til skólastjórnenda að senda börn sem komin eru í skólana ekki heim nema í öruggri fylgd foreldra eða forráðamanna.
 
Tilkynning frá lögreglunni á Suðurnesjum

Í samráði við skólamálayfirvöld í Reykjanesbæ eru foreldrar í Reykjanesbæ hvattir til að sækja börnin sín í skólann við fyrsta tækifæri.  Foreldrar verða að koma inn í skólann og sækja barnið.  Skólarnir munu sjá til þess að ekkert barn fari án fullorðins út í óveðrið.  Sama á við Grindavíkurskóla og Stóru-Vogaskóla í Vogum.  Í Gerðaskóla í Garði er nokkur fjöldi barna í skólanum og hafa skólayfirvöld þar rætt við foreldra barnanna um að sækja þau.

Öllu skólahaldi var aflýst í Sandgerðisskóla í morgun og eru öll börnin sem voru komin í skólann komin til síns heima.
 
Ekkert ferðaverður er á Reykjanesbraut 
 
Öllu skólahaldi var aflýst í Sandgerðisskóla í morgun og eru öll börnin sem voru komin í skólann komin til síns heima.
 
Aðrar staðbundnar tilkynningar frá lögreglu.
Vonskuveður er undir Eyjafjöllum og lögreglan á Hvolsvelli hvetur fólk til að vera þar ekki á ferðinni að nauðsynjalausu.   Við Steina undir Eyjafjöllum eru veðurhæð 30 metrar í hviðum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.   
 
Lögreglan á Akranesi vill ítreka að fólk hugi að lausum munum og vera ekki á ferli að nauðsynjalausu.   
 
Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er ennþá mjög hvasst undir Hafnarfjalli og þar er ekkert ferðaveður.
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert