Ráðist á lögreglumann

Frá Akureyri.
Frá Akureyri. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Lögreglumaður á Akureyri var fluttur á sjúkrahús í nótt og lagður þar inn í kjölfar árásar er hann varð fyrir frá aðila sem lögreglan var að hafa afskipti af.

Lögreglan var að færa handtekinn mann í lögreglubifeið fyrir utan skemmtistað í miðbænum  þegar sá handtekni náði að veitast að lögreglumanninum og veita honum höfuðhögg þannig að á sá. 

Var lögreglumaðurinn fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar og var hann lagður inn til rannsóknar í kjölfarið.  Árásaraðilinn var fluttur á lögreglustöðina og vistaður þar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert