Tófa vogar sér sífellt nær þéttbýli
„Það er greinileg aukning á tófu í nágrenni Reykjavíkur, ég lá á 7 grenjum í sumar og veiddi um 70 dýr í landi Mosfellsbæjar og hluta af Þingvallasveitinni. Fyrir 10 árum var vaninn að finna eitt greni á ári og ekki nema 10-15 dýr,“ segir Guðni Bjarnason sem veiðir tófu að beiðni bæjaryfirvalda í Mosfellsbæ.
Tófa hefur sést í auknum mæli í nágrenni Reykjavíkur og virðist voga sér sífellt nær þéttbýli.
Ágúst H. Bjarnason sagði í vefskrifum sínum fyrir skömmu frá spakri tófu sem hann sá í grennd við Ikea verslunina og Guðmundur Björnsson, meindýraeyðir hjá Reykjavíkurborg, segir ekki óalgengt að sjáist til tófu við Rauðhóla, undir Úlfarsfelli og jafnvel hafi sést til hennar í Húsahverfinu í Grafarvogi. Reykjavíkurborg sé þó aðeins með skipulagða grenjavinnslu undir Esjunni og ekki sé leitað víðar.
Guðni Bjarnason segir aukningu tófunnar áhyggjuefni því hún leggist á fugl. „Hún étur mikið af fugli og leggst þar næst á lömb,“ segir Guðni sem veit af bæ í Þingvallasveit sem missti um 70 lömb í tófu fyrir nokkrum árum.
Guðni rekur slaka rjúpnaveiði í ár að miklu leyti til tófunnar og segir rjúpnaveiðimenn hafa séð tófuspor út um allt en lítið af fugli. „Ég bý á Hraðastöðum í Mosfellsdal og rjúpan hefur verið friðuð hér frá árinu 1999. Fyrir þann tíma var meira af rjúpu hér en nú, þrátt fyrir að þá hafi mátt veiða,“ segir Guðni.
Hann segist jafnvel hafa þurft að skjóta tófu að næturlagi í húsagörðum Mosfellsbænum. Guðni telur að ef markviss grenjavinnsla væri í öllum hreppum myndi það bæta ástandið töluvert, yfirvöld þurfi að styðja við veiðina og ráða til þess atvinnumenn.
Talsmaður heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs segir að ekki hafi orðið teljandi aukning á tófu í grennd við bæjarfélögin þó erfitt sé að segja til um það þar sem markviss grenjavinnsla fari ekki fram. Engin ógn stafi þar af dýrunum þar sem ekki sé um landbúnaðarhéruð að ræða.
Bloggað um fréttina
-
Kjartan Pétur Sigurðsson REFUR, TÓFA, MELRAKKI, HEIMSKAUTSREFURINN - MYNDIR -
Hlynur Sveinsson Nei....þetta er öfugt -
Inga Lára Helgadóttir Verulega falleg skepna :)
Innlent »
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 9. nóvember 2007, Innlent Tófa aflífuð á Flateyri
- Miðvikudagur, 12. september 2007, Innlent Loftferðasamningur gerður við Malasíu
- Þriðjudagur, 4. mars 2008, Innlent Guðni Ágústsson: Ábyrgðin hjá forsætisráðherra
- Miðvikudagur, 2. apríl 2008, Innlent Borgin kemur illa undan vetri
- Fimmtudagur, 24. maí 2007, Innlent Sjálfstæðisflokkur neytir afls
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































