Ökumaður var fluttur á slysadeild eftir árekstur á Sæbraut til móts við Kirkjusand í Reykjavík nú síðdegis. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort meiðsl hans eru alvarleg. Önnur akreinin til norðurs er lokuð vegna slyssins og tafir á umferð af þeim sökum.