Sérleyfi til leitar á olíu í útboð

Olíuborpallur Statoil á Heiðrúnarsvæðinu í Norðursjó.

Olíuborpallur Statoil á Heiðrúnarsvæðinu í Norðursjó. mbl.is/statoil

Ríkisstjórn Íslands samþykkti í morgun, 18. desember 2007, tillögu iðnaðarráðherra um að stefnt verði að útboði sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi. Fram kemur í fréttatilkynningu frá iðnaðarráðuneytinu að miðað sé við að hægt verði að bjóða leyfin út 15. janúar 2009. Engin trygging er þó fyrir því að gas eða olía finnst á svæðinu.

Yfirlýsing ráðuneytisins fer í heild sinni hér á eftir: 

Ríkisstjórn Íslands samþykkti í morgun, 18. desember 2007, tillögu iðnaðarráðherra um að stefnt verði að útboði sérleyfa til leitar, rannsókna og vinnslu á olíu og gasi á Drekasvæðinu, norðaustur af Íslandi. Miðað er við að hægt verði að bjóða leyfin út 15. janúar 2009. Engin trygging er fyrir því að gas eða olía finnst á svæðinu.  

Niðurstöður jarðeðlisfræðilegra mælinga á svæðinu þykja gefa vísbendingar um að þar geti verið að finna bæði olíu og gas í vinnanlegu magni. Jarðfræðilega er svæðið hluti af samfelldu setlagasvæði sem upphaflega tengdi saman meginlandsskildi Noregs og  Grænlands og þar má finna þykk setlög. Víða hefur fundist olía og gas á nálægum og jarðfræðilega skyldum svæðum.

Forsenda þess að nú er hægt að leita þessara auðlinda á Drekasvæðinu er sú mikla þróun sem orðið hefur í bor- og vinnslutækni á undanförnum árum, ásamt nýlegri reynslu af olíu- og gasvinnslu á miklu hafdýpi á norðlægum slóðum.  Frekari rannsóknir, þar á meðal rannsóknarboranir, þarf hins vegar til að sannreyna hvort olíu og gas sé í reynd að finna á Drekasvæðinu.  

Samþykkt ríkisstjórnarinnar byggist á niðurstöðum ítarlegrar undirbúningsskýrslu sem unnin hefur verið um málið. Í skýrslunni, sem iðnaðarráðuneytið gaf út í mars 2007, var sett fram tillaga að áætlun um olíuleit á Drekasvæðinu þar sem m.a. er skoðuð hugsanleg umhverfisáhrif þeirrar áætlunar, í samræmi við lög nr. 105/2006, um umhverfismat áætlana.  

Skýrslan var kynnt á fimm opnum fundum og send helstu hagsmunaaðilum til umsagnar, auk þess sem almenningi gafst kostur á því að senda inn athugasemdir. Alls bárust 16 umsagnir og voru þær almennt jákvæðar. Í framhaldi var ákveðið að ráðast í frekari rannsóknir á lífríki sjávar, veðurfari og sjólagi á Drekasvæðinu. Nauðsynlegum rannsóknum verður lokið áður en til rannsóknar- og vinnsluborana kemur.  

Ríkisstjórnin stefnir að því að stuðla að skynsamlegri nýtingu hugsanlegra olíu- og gasauðlinda á Drekasvæðinu í sem mestri sátt við umhverfið og samfélagið, þjóðinni til hagsbóta. Engin trygging er fyrir því að olía og gas finnist  í vinnanlegu magni á Drekasvæðinu en ljóst er að verulegur olíu- og gasfundur gæti haft kröftug efnahagsleg áhrif á íslenskan þjóðarbúskap. Með því væri fleiri stoðum skotið undir efnahag og sjálfstæði þjóðarinnar, auk þess sem olíuvinnsla myndi efla byggð á svæðum sem næst liggja Drekasvæðinu. 

Gerðar verða ítrustu kröfur um öryggi og vinnuvernd, sem og umhverfisvernd og mengunarvarnir. Á næstu mánuðum verður unnið að því að endurskoða viðeigandi löggjöf og útfæra leyfisskilmála og skattalegt umhverfi vegna þessarar starfsemi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »
Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
KEBEK NAMA HEILSÁRSDEKK
Kebek - Nama heilsársdekk Pakkatilboð 4 dekk + vinna 185/55 R 14 kr. ...
Til sölu Nissan Almera - árgerð 2005
Til sölu Nissan Almera 1.8l, árgerð 2005. Sjálfskiptur. Dráttarkúla. Ekinn 110....
Stórt kvenreiðhjól 28" til sölu
Fallegt svart kvenreiðhjól til sölu Það er 28". 3 gíra með körfu Hannað fyrir ...
Sportbátur til sölu
Balyner 175, 2006 árgerð með 135 hestafla innanborðs bensín vél. Vagn, yfirbreið...
 
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Reykjanesbær sjóvarnir

Útboð Reykjanesbær, sjóvarnir 2012...
Aðalfundur alliance
Tilkynningar
Aðalfundur 2012 Aðalfundur ...