Samþykkt að selja hlut í HS

mbl.is

Tillaga Samfylkingarinnar og Vinstri grænna um að selja allt að 95% hlut af eign Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja til Orkuveitu Reykjavíkur var samþykkt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Fékk tillagan átta atkvæði en þrír voru á móti.

Var tillagan borin upp eftir að tillaga Sjálfstæðisflokksins um að selja allan hlut Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja til Orkuveitu Reykjavíkur var felld í bæjarstjórn með átta atkvæðum en þrír greiddu atkvæði með tillögunni.

Tillaga Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í heild: Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að nýta ákvæði í viljayfirlýsingu milli Hafnarfjarðarbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur frá 2. júlí 2007 varðandi sölu á eignarhlut bæjarfélagsins í Hitaveitu Suðurnesja hf.. Sú ákvörðun er jafnframt tekin á grundvelli þess hluthafasamkomulags sem í gildi er milli eignaraðila í Hitaveitu Suðurnesja hf. og undirritað var þann 11. júlí 2007, þar sem m.a. kemur fram að komi til sölu á hlut Hafnarfjarðarbæjar til Orkuveitu Reykjavíkur munu Reykjanesbær og Geysir Green Energy ehf. ekki nýta forkaupsréttarheimild sína að þeim hlut.

Eignarhlutur Hafnarfjarðarbæjar í Hitaveitu Suðurnesja er 15,4178%. Bæjarstjórn samþykkir að selja til Orkuveitu Reykjavíkur allt að 95% hlutafjár Hafnarfjardarbæjar i HS hf. Þá samþykkir bæjarstjórn Hafnarfjarðar jafnframt að teknar verði upp formlegar viðræður við Orkuveitu Reykjavíkur um möguleg kaup bæjarfélagsins á hlut í OR.

Bæjarstjórn samþykkir að fela starfshópi sem skipaður er oddvitum þeirra stjórnmalaflokka sem sæti eiga i bæjarstjórn að leita eftir samkomulagi vid Orkuveitu Reykjavikur um hugsanleg hlutafjárskipti. Slíkt samkomulag verði i síðasta lagi gert fyrir lok febrúar 2008. Forsendur þeirra kaupa ráðist af því verðmati sem liggi fyrir á Orkuveitunni og sameiginlegri afstöðu varðandi framtíðarskipan dreifikerfis rafmagns innan lögsögu Hafnarfjarðar.

Fyrir liggur að Hafnarfjarðarbær verður þriðjungshluthafi í Suðurlindum ohf. ásamt Grindavík og Sveitarfélaginu Vogum, en formlegur stofnfundur félagsins verður haldinn nk. fimmtudag. Meginverkefni þessa nýja félags er að standa vörð um sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna og íbúa þeirra varðandi náttúrauðlindir og mögulega nýtingu orkuauðlinda innan lögsagnarumdæma sveitarfélaganna.

Bæjarstjórn itrekar að Hafnarfjarðarbær á og rekur bæði Vatnsveitu Hafnarfjarðar og Fráveitu Hafnarfjarðar og mun halda því eignarhaldi og þeim rekstri áfram með óbreyttu sniði .

Bæjarráði er jafnframt falið að ganga frá tillögum um ráðstöfun söluvirðis umræddra eignarhluta, þegar fyrir liggur, hvernig samkomulagi um hlutafjárskipti reiðir af og hversu stóran hluta Hafnarfjarðarbær selur í HS.

Söluverð skal vera á genginu 7.0 samanber viljayfirlýsingu frá 2. júlí sl. og uppgjör fari fram við undirritun sölusamnings innan 2ja vikna frá samkomulagi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert