Fær 1,5 milljónir í bætur fyrir meiðyrði
Magnús Ragnarsson. mbl.is/ÞÖK
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt 365 miðla til að greiða Magnúsi Ragnarssyni, fyrrum sjónvarpsstjóra Skjás Eins, 1,5 milljónir króna í miskabætur fyrir ummæli sem birtust í DV í september á síðasta ári og Fréttablaðinu í janúar og febrúar á þessu ári. Ummælin voru einnig dæmd dauð og ómerk.
Að auki var fyrirtækið dæmt til að greiða Magnúsi 480 þúsund krónur í málskostnað og 480 þúsund til að standa straum af birtingu dómsins í dagblöðum.
Í dómnum kemur fram, að DV hafi fjallað um einkalíf Magnúsar með óviðurkvæmilegum hætti. Segir dómurinn, að einkalíf manna, heimili og fjölskylda njóti friðhelgi samkvæmt stjórnarskrá og menn eigi samkvæmt því rétt á að njóta friðar um lífshætti sína og einkahagi. Sé ótvírætt að rétturinn til þess að njóta friðar um einkahagi sína og lífshætti nái til þess að njóta friðar um hjúskaparslit sín, enda vart unnt að hugsa sér málefni sem höggva nær einkalífi manna en mál sem lúti að erfiðleikum í hjúskap.
Í frétt í Fréttablaðsins var m.a. sagt að Magnús væri kallaður „Maggi glæpur“ á markaðsdeild 365. Dómurinn segir að þessi ummæli séu móðgandi og meiðandi fyrir Magnús og feli í sér aðdróttun. Engu máli skiptir í þessu samhengi hvaða forsendur 365 miðlar hafi talið sig hafa til þess að skeyta viðurnefni þessu við nafn Magnúsar í fréttinni.
Fyrirsögn á annarri grein var „Geðþekkur geðsjúklingur," og fylgdi mynd af Magnúsi með. Í greininni sagði m.a., að dagskrárstefna Skjás Eins væri í anda geðklofasjúklings, en geðklofasjúklingurinn sé geðþekkur. Er það mat dómsins að með því að birta stóra ljósmynd af Magnúsi við hlið yfirskriftarinnar ,,geðþekkur geðsjúklingur“ sé verið að vísa til hans á afar móðgandi hátt og drótta að geðheilsu hans.
Bloggað um fréttina
-
Ari Guðmar Hallgrímsson Dæmigert mat dómara!!!!! -
Gísli Bergsveinn Ívarsson Hvað kostar mannorðið? -
-
Stefán Friðrik Stefánsson Merkilegur dómur
Innlent »
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. desember 2008, Innlent Ummæli ómerkt
- Miðvikudagur, 30. janúar 2008, Innlent 365 áfrýja dómi
- Föstudagur, 21. desember 2007, Innlent Felldu sinn dóm
- Fimmtudagur, 7. júní 2007, Innlent Magnús Ragnarsson stefnir Ara Edwald
- Föstudagur, 26. október 2007, Innlent Fyrrum ritstjórar DV sýknaðir í meiðyrðamáli
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju

































