Ráðherra veitt heimild til að ganga til samninga við borgina

Reykjavíkurflugvöllur.

Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is

Alþingi samþykkti stuttu fyrir þinglok breytingartillögu meirihluta fjárlaganefndar við fjárlögin þess efnis að gengið verði til samninga við Reykjavíkurborg um lóð undir samgöngumiðstöð sem fyrirhugað er að reisa við Reykjavíkurflugvöll.

Að sögn Gunnars Svavarssonar, þingmanns Samfylkingarinnar og formanns fjárlaganefndar, er hér um svonefnda 6. greinar heimildargrein að ræða, sem heimilar fjármálaráðherra að ganga til samninga við Reykjavíkurborg um lóð undir samgöngumiðstöð í Vatnsmýri á árinu 2008. Ekki felast í greininni nein fjárhagsleg viðmið, en að sögn Gunnars munu viðræður milli fjármálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar væntanlega leiða í ljós hvaða tölur sé um að ræða.

Að sögn Þórhalls Arasonar, skrifstofustjóra fjárreiðu- og eignaskrifstofu í fjármálaráðuneytinu, eru samningaviðræður við Reykjavíkurborg ekki enn hafnar, þar sem fjármálaráðuneytið bíður sem stendur eftir nánari upplýsingum frá samgönguráðuneytinu um málið. Spurður hvenær stefnt sé að því að samningum verði lokið segir Þórhallur ekki hægt að svara því á þessu stigi.

Samgöngumiðstöðin norðan við Hótel Loftleiðir

Samkvæmt upplýsingum frá Flugstoðum er áætlað að samgöngumiðstöðin muni rísa á svæði sem er norðan við Hótel Loftleiðir og sunnan við Hringbraut, gegnt gatnamótum við Læknagarð og BSÍ. Í viðræðum milli Reykjavíkurborgar og samgönguyfirvalda mun nákvæm staðsetning og stærð lóðarinnar skýrast. Eftir því sem blaðamaður kemst næst er áætlað að samgöngumiðstöðin útheimti 49 þúsund fermetra umráðasvæði, þar af yrði lóð hugsanlega 25 þúsund fermetrar og húsið um 8 þúsund fermetrar á tveimur hæðum og með stórum bílakjallara.

Miðað er við að opnun samgöngumiðstöðvarinnar gæti orðið um mitt ár 2009, en það er háð því að framkvæmdir geti hafist fljótlega á nýju ári, þ.e. á fyrsta fjórðungi ársins 2008. Þetta var meðal þess sem fram kom í skriflegu svari Kristjáns L. Möller samgönguráðherra, við fyrirspurn Þuríðar Backmann þingkonu Vinstri grænna á Alþingi 13. desember sl. Í sama svari kom fram að fyrsta áfanga í undirbúningsvinnu vegna byggingar samgöngumiðstöðvarinnar sé þegar lokið og að niðurstöður hans séu til umfjöllunar.

Hönnunin taki mið af því að flugvöllurinn geti farið

Samkvæmt upplýsingum úr samgönguráðuneytinu er gert ráð fyrir að samgöngumiðstöðin muni þjóna flugrekendum og flugfarþegum í áætlunar- og leiguflugi og vera miðstöð langferðabifreiða, auk þess að tengjast almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þá er gert ráð fyrir margháttaðri verslunar- og veitingaþjónustu, auk bankastarfsemi og skrifstofuhúsnæðis. Í fyrrgreindu svari ráðherra kemur fram að hönnun miðstöðvarinnar miðist við að þar rúmist annars konar starfsemi ef til þess komi að flugvöllurinn fari úr Vatnsmýrinni.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »
Nýstúdentar frá Fjölbrautarskólanum í Garðabæ

Fengu 9,8 í meðaleinkunn

11:49 Tveir nýstúdentar frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, Katrín Ásta Ingimarsdóttir og Sæþór Pétur Kjartansson, fengu 9,8 í meðaleinkunn í námi sínu. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Geir í nýtt starf

Geir H. Haarde
11:43 Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur gengið til liðs við OPUS lögmenn sem ráðgjafi í alþjóðlegum verkefnum.  Meira »

Ölvaður og réttindalaus

11:37 Ölvaður ökumaður, karlmaður á fertugsaldri, velti bifreið á Reykjanesbraut í fyrrinótt. Hann missti stjórn á bílnum sem hafnaði utan vegar milli akreina. Einn farþegi var í bílnum og sluppu báðir ómeiddir. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Mikið um reiðhjólaþjófnað

Mynd úr safni
11:39 Þjófnuðum á reiðhjólum hefur fjölgað umtalsvert í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.   Meira »

Tekinn á 134 km hraða

11:36 Ellefu ökumenn hafa verið staðnir að hraðakstursbrotum í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sá sem hraðast ók var á 134 km hraða á Reykjanesbrautinni. Meira »

Ástþór losnar ekki við fyrirvara

Ástþór Magnússon og eiginkona hans Natalía Wiium.
11:34 „Ég veit ekki hversu margar þær eru en hann er búinn að skila viðbót núna,“ segir Katrín Theodórsdóttir, annar oddviti yfirkjörstjórna Reykjavíkurkjördæma norður og suður, aðspurð hvort hún geti staðfest að Ástþór Magnússon hafi skilað tæplega 200 viðbótarundirskriftum í morgun. Meira »

Með loftbyssu í farangrinum

Mynd úr safni
11:26 Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag gert viðvart um að karlmaður væri með loftbyssu og skotfæri í fórum sínum í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Höfðu munirnir komið fram við skimun öryggisgæslu á farangri mannsins. Meira »

Annað innbrotið á innan við viku

Mynd úr safni
11:29 Lögreglunni á Suðurnesjum barst í morgun tilkynning þess efnis að brotist hefði verið inn í fyrirtæki hjá Grófinni í Keflavík og þaðan stolið skrifstofubúnaði. Er þetta annað innbrotið í fyrirtækið í vikunni. Meira »

Kirkjugarðar geta varla starfað áfram

11:20 Kirkjugarðar geta ekki starfað áfram nema einingarverðið á hvern grafreit verði uppfært eins og það á að vera án allrar skerðingar,“ segir Þórsteinn Ragnarsson, formaður Kirkjugarðasambands Íslands (KGSÍ) og forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma. Meira »

Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér

Nýsköpunarsjóði er ætlað að vera virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum.
11:19 Nýsköpunarsjóður er í þröngri stöðu og getur ekki beitt sér sem skyldi sem virkur fjárfestir í nýjum sprotafyrirtækjum. Þetta sagði Kristján Skarphéðinsson ráðuneytisstjóri í iðnaðarráðuneytinu á ársfundi sjóðsins. Meira »

Aðeins sakfelldir fyrir sterana

Lögmenn í Straumsvíkurmálinu.
11:05 Sævar Sverrisson og Geir Hlöðver Ericsson eru báðir sakfelldir í Straumsvíkurmálinu svonefnda fyrir innflutning á sterum. Dómurinn taldi hins vegar ekki sannað að Geir Hlöðver hafi staðið að innflutningi fíkniefnanna sem voru í sama gámi og sterarnir. Meira »

„Gengur treglega að fá niðurstöðu“

Jóhanna Sigurðardóttir
10:51 „Varðandi skuldamálin erum við enn að skoða þessi lánsveð og það gengur treglega að fá niðurstöðu í þau mál,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Meira »

„Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
11:18 „Ég er að segja að hann sé að segja ósatt um það að ég gangi hér á eftir þingmönnum og segi þeim hvernig þeir eigi að greiða atkvæði. Auðvitað gera þeir það sjálfir eins og þeir vilja. Ég hef ekki beitt mér á einn eða annan hátt í þessu máli,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir á Alþingi í dag. Meira »

Skoða leiðir um afnám hafta með ESB

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
10:51 Forsætisráðherra segir að stjórnvöld séu að skoða leiðir til að flýta afnámi gjaldeyrishaftanna í samstarfi við ESB. Jóhanna Sigurðardóttir ræddi málið við Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, í gær og segist hafa fengið jákvæð viðbrögð. Hún tekur fram að ekkert formlegt samkomulag hafi verið gert. Meira »

Meira haldlagt af stinningarlyfjum

Viagra
10:32 Gríðarleg aukning varð í magni stinningarlyfja sem Tollgæslan lagði hald á við eftirlit í fyrra miðað við árið 2010. Hins vegar liggja ekki fyrir tölur um þróunina það sem af er þessu ári. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Framstuðari á PT. Crushier 2005-8
Til sölu splunkunýr framstuðari. Fullt verð hér 135 þús.(Uppgefið Bíljöfur). Ég...
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR Á FRÁBÆRU VERÐI - ERTU BÚIN AÐ KÍKJA? http://www.123budin...
BENZ JEPPI ML 430 skoða skipti
Til sölu MERCEDES BENZ ML 430 árg.'99 ek.117 þúsund mílur Sjálfskiptur, leður, l...
TOYOTA COROLLA H/B
Toyota Corolla H/B Sol, 01/2004, ekinn 84 þús. Ssk., vindskeið,...
 
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
Umsjónarkennsla - sérkennsla - textílkennsla - þroskaþjálfi
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...