Þæfingsfærð í borginni

Snjór ruddur á Fríkirkjuvegi í dag.
Snjór ruddur á Fríkirkjuvegi í dag. Ómar Óskarsson

Þrátt fyrir þæfingsfærð vegna snjókomunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag hefur umferð gengið áfallalítið, að sögn lögreglunnar.

Tveir árekstrar urðu um þrjúleytið við Hvalfjarðargöngin, hver á fætur öðrum, og voru alls þrír fluttir á slysadeild. Enginn mun hafa verið alvarlega slasaður.

Mikil hálka og slæmt skyggni var á vettvangi. 

Að sögn lögreglunnar var tilkynnt um einn árekstur til viðbótar á höfuðborgarsvæðinu í dag, hann varð á mótum Borgartúns og Kringlumýrarbrautar, en var minniháttar.

Snjó hefur kyngt niður í höfuðborginni í dag, og samkvæmt veðurspá tekur hann væntanlega ekki upp fyrr en um helgina. Margir snjókarlar og -kerlingar - og jafnvel -kettir - hafa sprottið upp í görðum borgarbúa í dag.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert