Hörmuleg áminning um fórnir sem færðar eru fyrir lýðræði

Benazir Bhutto.
Benazir Bhutto. Reuters

 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna morðsins á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, þar sem segir að morðið sé hörmuleg áminning um fórnirnar, sem einatt séu færðar þegar reynt er að festa lýðræði í sessi.

„Benazir Bhutto var virtur leiðtogi sem varaði eindregið við hryðjuverkum og öfgaöflum. Hún var hámenntuð og víðsýn; því kynntist ég vel í samræðum okkar á fyrri árum, geislaði af orku og baráttukrafti. Hún hafði djúpan skilning á sameiginlegum hagsmunum Vesturlanda og ríkja sem aðhyllast múhameðstrú. Með dauða hennar hafa sáttaöflin misst öflugan forystumann.

Ég votta fjölskyldu Benazir Bhutto og pakistönsku þjóðinni einlæga samúð mína," segir í yfirlýsingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert