Samþykktu kjarasamninga smábátasjómanna

Smábátaútgerð hefur vaxið á félagssvæði VHN á undanförnum misserum og …
Smábátaútgerð hefur vaxið á félagssvæði VHN á undanförnum misserum og því talið mikilvægt að í gildi væri kjarasamningur um kjör og réttindi smábátasjómanna. mbl.is/Hafþór

Nýr kjarasamningur Landssambands smábátaeigenda og Sjómannasambands Íslands var tekinn til afgreiðslu á aðalfundi Sjómannadeildar Verkalýðsfélags Húsavíkur og nágrennis í gærkvöldi og samþykktur samhljóða.

Fram kemur á heimasíðu stéttarfélaganna í Þingeyjarsýslum, að fundarmenn hafi fagnað samningnum enda ekki verið til kjarasamningur fyrir smábátasjómenn fram að þessu.

Smábátaútgerð hefur verið mjög vaxandi á félagssvæðinu og því töldu fundarmenn mikilvægt að í gildi væri samningur um kjör og réttindi smábátasjómanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert