Heimabruggi verður eytt

Slökkviliðsmaður sést hér að störfum á Laugavegi í dag.
Slökkviliðsmaður sést hér að störfum á Laugavegi í dag. mbl.is/Júlíus

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins flutti um 500 lítra af gambra, sem fundust í heimahúsi á Laugavegi í gærkvöldi, á milli íláta, en lögreglan hefur lagt hald á áfengið. A.m.k einn hefur verið handtekinn í tengslum við málið.

Áfengið verður síðan flutt og því eytt. Ekki liggur fyrir hvort fleiri hafi verið handteknir, en rannsóknardeild lögreglunnar rannsakar nú málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert