Vona að veðrið setji ekki strik í flugeldasöluna
„Venjulega selst helmingurinn af flugeldalagernum á gamlársdag, en við vonumst til þess að dagurinn á morgun [mánudag] verði drjúgur og að við seljum enn þá meira en helminginn,“ segir Kristinn. Spurður hvort hann óttist að ekki alltof hagstæð veðurspá fyrir gamlárskvöld setji strik í reikninginn í flugeldasölunni svarar Kristinn því neitandi og bendir á að allt útlit sé fyrir veðrið verði nógu gott til að kveikt verði í brennum.
„Við erum bjartsýn á að þetta sleppi nú alveg fyrir horn. Ég held líka að þó veðrið verði hugsanlega leiðinlegt á miðnætti þá finnur fólk sér bara tíma sem hentar þeim til að skjóta upp sínum flugeldum, hvort sem það verður að kvöldi nýársdags eða á þrettándanum. Það situr enginn upp með þetta,“ segir Kristinn og bendir á að þau ár þar sem veðrið hefur verið leiðinlegt á gamlárskvöld hafi oft verið skotið meiru upp á þrettándanum.
Spurður hvernig gengið hafi að manna sölubása í gær meðan vonskuveðrið gekk yfir og margir björgunarsveitarmenn þurftu að sinna útköllum á höfuðborgarsvæðinu segir Kristinn að það hafi allt bjargast. „Við þurftum að grafa svolítið djúpt í vasana til að finna fólk, en þetta eru yfirleitt stórar sveitar og því var hægt að ná í eldri félaga til að leggja okkur lið. Þannig var yngra og sprækara fólkið í björgunarstörfunum.“
Hjá Vilhelmi Gunnarssyni, félaga í Hjálparsveit skáta Kópavogi, fengust þær upplýsingar að flugeldasala sveitarinnar hefði verið með dræmari móti í gær sökum veðurs, en að menn væru bjartsýnir á góða sölu í dag. Þannig vonuðust menn til þess að salan þetta árið verði svipuð og í fyrra.





































