Krotað á veggi fjölda húsa í nótt

Veggjakrot er ekki aðeins sjónmengun, heldur kostnaðarsöm eignaspjöll
Veggjakrot er ekki aðeins sjónmengun, heldur kostnaðarsöm eignaspjöll mbl.is/Brynjar Gauti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði hendur í hári þriggja pilta í miðborginni í nótt sem grunaðir eru um umfangsmikið veggjakrot á fjölda húsa. 

Piltarnir höfðu með sér brúsa og önnur tæki og tól sem notuð er við veggjakrot er þeir náðust í nótt, í námunda við hús sem hafði verið krotað. Spreyjað var á fjölda húsa í nótt, einkum á Laugaveginum, og er lögregla enn að kanna hve mörg hús voru skemmd.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert