Starfssemi SLMM í uppnámi
Íslensk stjórnvöld harma ákvörðun stjórnvalda á Sri Lanka sem hafa sagt upp vopnahléssamkomulagi við Tamíl Tígra. Þá segja stjórnvöld að ljóst sé að ákvörðunin muni setja starfsemi vopnahléseftirlitssveitarinnar í uppnám.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, en hún er eftirfarandi:
„Stjórnvöld á Sri Lanka hafa ákveðið að segja upp vopnahléssamkomulagi stjórnvalda og baráttusamtaka Tamíl Tígra (LTTE) sem verið hefur í gildi síðan í febrúar 2002. Samkvæmt ákvæðum samkomulagsins skal tilkynna norska utanríkisráðuneytinu það með 14 daga fyrirvara verði samkomulagið fellt úr gildi af öðrum hvorum aðilanum. Formleg tilkynning liggur ekki fyrir, en stjórnvöld á Sri Lanka hafa gert fyrirætlun sína opinbera.
Íslensk stjórnvöld harma þessa ákvörðun stjórnvalda í Kolombó og óttast að hún verði til þess að auka enn hörmungar íbúa landsins. Eftirlit vopnahléseftirlitssveitarinnar á Sri Lanka (SLMM - Sri Lanka Monitoring Mission) hefur, þrátt fyrir aukin átök og vopnahlésbrot undanfarið, haft hamlandi áhrif á stríðandi fylkingar í landinu og haldið opnum tengslum við báða deiluaðila. Án eftirlitsins er hætta á að átökin verði bæði grimmilegri og víðtækari.
Ljóst er að uppsögn vopnahléssamkomulagsins mun setja starfsemi SLMM í uppnám enda er umboð og öryggistrygging eftirlitssveitanna alfarið byggð á samkomulaginu. Utanríkisráðuneyti Noregs og Íslands eru í nánu samstarfi um málið og munu taka ákvörðun um starfsemi SLMM þegar formlegar upplýsingar berast frá stjórnvöldum á Sri Lanka. Níu íslenskir friðargæsluliðar eru starfandi innan eftirlitssveita SLMM.“
Innlent »
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 4. október 2007, Innlent Krefjast þess að íslenskur sendifulltrúi verði kallaður heim
- Föstudagur, 22. desember 2006, Innlent Friðargæsluliðar á Sri Lanka kallaðir til Colombo
- Fimmtudagur, 4. október 2007, Innlent Hitti fulltrúa tamílsku Tígranna án heimildar
- Fimmtudagur, 3. janúar 2008, Innlent Segir ákvörðun koma á óvart
- Laugardagur, 19. janúar 2008, Innlent Einn Íslendingur verður á Srí Lanka fram í febrúar
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































