Bifreið sem var stolið er fundin

Bíl sem var rænt í gær og auglýst var eftir fyrr í kvöld er fundin. Samkvæmt upplýsingum frá móður eiganda bifreiðarinnar var allt hreinsað út úr bifreiðinni en í henni voru ýmsar eigur frá fjölskyldunni meðal annars föt og bílstólar.

Í frétt sem birtist á mbl.is fyrir nokkrum klukkustundum síðan kom  fram að um er að ræða silfurlitaðan VW Golf en honum var stolið fyrir utan Mjóddina í Reykjavík um miðjan dag í gær. Bíllinn sem er með skráningarnúmerið JH 897 en númeraplötu vantar að framan. En eins og áður sagði er bifreiðin fundin. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert