Ók ölvaður um miðborgina
Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í miðborginni aðfaranótt laugardags og segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, að maðurinn hafi stefnt vegfarendum í Pósthússtræti og Tryggvagötu í hættu með ógætilegum akstri.
Maðurinn var ölvaður og hafði þegar verið sviptur ökuleyfi. Með honum í för voru tveir kunningjar hans á svipuðum aldri og voru þeir líka færðir á lögreglustöð en annar þeirra lét mjög ófriðlega.
Sömu nótt var hálfþrítugur karl handtekinn í Hafnarfirði en sá ók bíl sínum á tvo kyrrstæða bíla. Annar þeirra kastaðist áfram á þriðja bílinn en tjónvaldurinn fór af vettvangi og skildi bíl sinn eftir. Ökufanturinn náðist fljótlega og reyndi í fyrstu að koma sök á annan mann en játaði svo brot sitt.
Akstur þrítugrar konu var einnig stöðvaður aðfaranótt laugardags en til hennar náðist á Breiðholtsbraut. Hún var líka ölvuð og hafði þar að auki þegar verið svipt ökuleyfi. Þá var karl á þrítugsaldri handtekinn í
Kópavogi í fyrrinótt en sá var sömuleiðis drukkinn undir stýri. Maðurinn lenti í umferðaróhappi og fór af vettvangi en komst ekki langt.
Þá voru fimm ökumenn, allt karlar, teknir fyrir aka undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sá yngsti þeirra, sem er tæplega hálfþrítugur, var stöðvaður í Háaleitishverfi en í bíl hans fundust ætluð fíkniefni. Í framhaldinu var leitað á heimili mannsins en þar fundust bæði e-töflur og talsvert af reiðufé.
Annar maður, litlu eldri, var stöðvaður við akstur í Hlíðunum og reyndist sá einnig undir áhrifum fíkniefna. Maðurinn reyndist jafnframt þegar hafa verið sviptur ökuleyfi. Hann tók fljótlega upp fyrri iðju eftir að hafa verið sleppt úr fangageymslu og settist aftur undir stýri. Hann var því handtekinn öðru sinni og færður í fangageymslu á nýjan leik.
Þriðji maðurinn, sem er rúmlega þrítugur, var stöðvaður á Vesturlandsvegi en hann var sömuleiðis í annarlegu ástandi og líkt og sá í Hlíðunum hafði þessi þegar verið sviptur ökuleyfi.
Fjórði maðurinn, sem er fertugur, var handtekinn í Kópavogi en í bíl hans fundust ætluð fíkniefni sem og töluvert af verkfærum en lögreglu þykir líklegt að þau séu illa fengin.
Loks var maður á fimmtugsaldri handsamaður á Miklubraut en aksturslag hans þótti í meira lagi grunsamlegt. Þegar að var gáð reyndist ökumaðurinn í annarlegu ástandi.
Bloggað um fréttina
-
Hjördís Ásta Alltaf jafn sorglegt!!! -
Jóhannes Ragnarsson Draugfullar konur velta út úr bifreiðum.
Innlent »
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 7. janúar 2008, Innlent Ökumenn í annarlegu ástandi
- Föstudagur, 26. október 2007, Innlent Úti að aka undir áhrifum áfengis og fíkniefna
- Föstudagur, 24. ágúst 2007, Innlent Þrir teknir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna
- Þriðjudagur, 20. maí 2008, Innlent Fjöldi fíkniefnamála um helgina
- Mánudagur, 16. júlí 2007, Innlent Fjórir ökumenn teknir undir áhrifum fíkniefna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































