Fannfergi í Grindavík

Þótt víða hafi snjóað í dag hefur líklega hvergi kyngt niður snjó líkt og í Grindavík. Þar hafa björgunarsveitamenn átt fullt í fangi með að aðstoða ökumenn, mokstursbílar höfðu ekki undan við að moka götur bæjarins og var Grindavíkurvegur lokaður um tíma.  Þá var öllu skólahaldi aflýst og sátu því 500 skólabörn heima í dag. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert