Fjórir einstaklingar hafa greinst með jákvætt berklapróf í kjölfar rannsóknar vegna berklasmitaðs manns sem kom til læknismeðferðar á Landspítalanum á síðasta ári. Fólkið er allt af erlendu bergi brotið.
Að sögn Haraldar Briem sóttvarnarlæknis er fylgst náið með fólkinu. Aðeins einn af hverjum tíu sýnir einkenni sjúkdómsins, þrátt fyrir smit.