FÍB sendir olíufélögum tóninn

AP

Félag íslenskra bifreiðaeigenda veltir því fyrir sér hvers vegna olíufélögin virðist vera sein til að lækka eldsneytisverð þótt heimsmarkaðsverð á bensíni hafi lækkað umtalsvert á undanförnum dögum.

FÍB segir á heimasíðu sinni, að olíufélögin hafi verið skjót að taka við sér þegar heimsmarkaðsverð á bensíni og dísilolíu hækkaði í upphafi árs. Bensínið hækkaði um 1,50 krónur lítrinn og dísilolían um 0,50 krónur. Þann 3. janúar sl. þegar umrædd hækkun varð hér á landi var heimsmarkaðsverðið á bensíni í 874 Bandaríkjadalir tonnið.

FÍB ségir að í dag, 17. janúar, nákvæmlega tveimur vikum síðar, sé bensíntonnið á heimsmarkaði komið niður í 774 Bandaríkjadali. Íslenska krónan hefur vissulega verið að veikjast á sama tíma en uppreiknað í kostnað á hvern lítra miðað við gengið þann 3. janúar og aftur í gær, þá hafi kostnaðarverð á hvern lítra lækkað um ríflega 3 krónur.

FÍB segir, að dísilolían hafi á þessum hálfa mánuði að teknu tilliti til gengis krónunnar lækkað um 2,50 krónur á lítra á heimsmarkaði. 

„Við síðustu verðhækkun héldu talsmenn (olíufélaganna) því fram að eðlilega væri útsöluverðið hér í samræmi við kostnaðarverð á heimsmarkaði. Telja stjórnendur olíufélaganna þá að það eigi bara við þegar heimsmarkaðsverð hækkar en alls ekki þegar það lækkar?" spyr FÍB.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert