Íslendingar dragast aftur úr efnahagsfrelsinu
Íslendingar lenda í 14. sæti á efnahagsfrelsistöflunni sem fjármálaritið The Wall Street Journal og hugveitan The Heritage Foundation gefa árlega út, en hagkerfið íslenska fær 76,5 stig af 100 möguleikum.
Íslendingar hafa staðið nokkuð í stað síðustu fjögur árin þegar horft er á stigin. Hins vegar hafa önnur lönd aukið efnahagslegt frelsi, og hefur Ísland því dottið niður um fjögur sæti.
Efnahagslegu frelsi er skipt upp í 10 svið, og þykja Íslandingar standa sig vel á flestum sviðum. Þannig þykja t.d. litlar hömlur á að sett séu upp fyrirtæki hér á landi, eignarrétturinn virkur og skattaumhverfið samkeppnishæft.
Íslendingar fá þó ekki mörg frelsisstig á tveimur sviðum efnahagslífsins. Íslenska hagkerfið fær einungis 46,3 stig af 100 í lið sem kallast „Frelsi undan stjórnvöldum", og gagnrýna höfundar töflunnar t.d. hátt hlutfall ríkisútgjalda af landsframleiðslu og mikla styrki til landbúnaðarframleiðslu. Þá þykir frelsi til fjárfestinga ekki mikið hér á landi, og eru Íslendingar sérstaklega átaldir fyrir að hleypa erlendum fjárfestum ekki inn í sjávarútveginn.
„Ég lít á þetta sem áskorun um að lækka skatta hér á landi," segir Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands.„Skattar hafa verið lækkaðir hér á landi á undanförnum árum með góðum árangri, og ég tel að ganga eigi lengra í þeim efnum."
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, tekur undir að hlutföll ríkisútgalda af landsframleiðslu séu há hér á landi. „Það á að vera sérstakt markmið stjórnvalda að draga úr ríkisútgjöldum og minnka umsvif ríkisins á þeim sviðum sem það er hægt og heppilegt." Það verði gert með því að auka þátttöku einakaðila á ýmsum sviðum, sem þurfi þó ekki endilega að þýða einkavæðingu.
Björgvin segir einnig standa til að auka frelsi erlendra aðila til að fjárfesta hér á landi. Vel kemur til greina að hleypa erlendum aðilum að sjávarútvegnum, segir Björgvin, en setja verði um það skýrar reglur.
Innlent »
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. janúar 2008, Innlent Efast um mælingar á frelsi
- Miðvikudagur, 28. nóvember 2007, Innlent 30.000 nýir fermetrar fyrir jól
- Fimmtudagur, 13. nóvember 2008, Innlent Munu Íslendingar axla ábyrgð
- Þriðjudagur, 17. febrúar 2009, Innlent Vill Ísland í Evrópusambandið
- Miðvikudagur, 3. október 2007, Innlent Steingrímur J: Hagstjórn í molum og áætlanagerð úti í hafsauga
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































