Einstæð húsleitarheimild

Morgunblaðið Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is

Ágreinigur skattrannsóknarstjóra og ríkislögreglustjóra um afhendingu gagna vegna rannsóknar á meintum skattalagabrotum Óskars Magnússonar, fyrrverandi stjórnarformanns Baugs Groups, hefur að líkindum náð hámarki hinn 10. janúar sl. þegar ríkislögreglustjóri fékk í Héraðsdómi Reykjavíkur samþykktar kröfur sínar um húsleit hjá skattrannsóknarstjóra.

Úrskurðarorð héraðsdóms er á þá leið að ríkislögreglustjóra sé heimilt að leita hjá skattrannsóknarstjóra í því skyni að leggja hald á tiltekin gögn.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri staðfestir að ágreiningur sé milli embættanna um afhendingu gagna og að málið sé fyrir dómstólum. Úrskurður héraðsdóms hefur verið kærður til Hæstaréttar af hálfu skattrannsóknarstjóra og er niðurstöðu hans beðið. Bryndís segir að einsdæmi hljóti að teljast að dómstóll skuli með úrskurði veita lögreglu húsleitarheimild hjá skattrannsóknarstjóra en hún tjáir sig ekki frekar um málið á meðan það er til meðferðar hjá dómstólum.

Ágreining embættanna um afhendingu gagna má rekja til ársins 2006 þegar ríkislögreglustjóra var neitað um gögn hjá skattrannsóknastjóra á þeim forsendum að þau væru lögreglu óviðkomandi.

Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, segir að dómkrafa ríkislögreglustjóra nú byggist á úrræði í lögum um meðferð opinberra mála frá 1991. „Ef Hæstiréttur staðfestir úrskurð héraðsdóms, mun þó ekki koma til þess að farið verði í eiginlega húsleit hjá skattrannsóknarstjóra samkvæmt orðanna hljóðan,“ segir hann. „Við gerum ráð fyrir því að fá gögnin einfaldlega afhent. Skattrannsóknarstjóri heldur því fram að það sé mikill vafi á því að rannsóknarlögreglustjóri hafi heimildir til að fá aðgang að þessum gögnum.

Ég hef litið á málið sem ágreining um túlkun laga sem hefur náð ákveðnu hámarki núna og við þurfum að bíða dóms Hæstaréttar. Það verður að hafa í huga að sem ákæruvald erum við að uppfylla skyldur okkar um að rannsaka mál og við getum ekki vanrækt þann hluta málsins sem snýr að gagnaöflun.“

Í hnotskurn
» Helgi M. Gunnarsson bendir á að almenn þagnarskylda ríkisstarfsmanna, m.a. í skattkerfinu, hafi ekki komið í veg fyrir það hingað til að lögreglu sé veittur aðgangur að gögnum. Lögregla hafi einnig sína þagnarskyldu þannig að gögnin verði áfram bundin þagnarskyldu. Beðið er dóms Hæstaréttar í málinu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Krýsuvík.

Fylgjast þarf með Krýsuvík

17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Socata TB-10
Til sölu Socata TB-10 árgerð 1999. Vélin er staðsett á Íslandi og með gilt lofth...
Til sölu starex 2.5 Dísel
Er með Hyunday H-1 starex 4x4 skráður 02.2000 skráður 7manna ekin 191 þús. Er ný...
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
Til sölu Toyota RAV4 2,0 árg. 2002
Sjálfskiptur, bensín. Dökkrauður. Ekinn aðeins 142 þ. Dráttarkúla. Vel með farin...
 
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...