Sakborningar játuðu sök
Sakborningar í Fáskrúðsfjarðarmálinu svonefnda játuðu að mestu leyti sök þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir gerðu þó athugasemdir við það magn fíkniefna, sem þeir eru ákærðir fyrir að hafa reynt að smygla til landsins. Fram kom m.a. sú skoðun þeirra, að raki hefði komist í efnin og þau því verið þyngri við vigtun lögreglu.
Einar Jökull Einarsson, sem er ákærður er fyrir að hafa skipulagt smyglið, játaði sakargiftir en gerði fyrirvara um magn fíkniefnanna. Ákært er smygl á 23,5 kílóum af amfetamíni, tæpum 14 kílóum af e-töfludufti og 1747 e-töflum til landsins með skútu sem lagðist að bryggju í Fáskrúðsfirði í september.
Bjarni Hrafnkelsson játaði að hafa pakkað efnunum inn í íbúð í Kaupmannahöfn í ágúst á síðasta ári en sagðist ekki hafa komið að skipulagningu smyglsins að öðru leyti.
Þeir Alvar Óskarsson og Guðbjarni Traustason, sem sigldu skútunni til landsins, játuðu þann þátt en sögðust hafa verið beðnir um þetta eina verk í tengslum við smyglið.
Marinó Einar Árnason játaði að hafa tekið á móti skútunni í Fáskrúðsfirði og að hafa komið með vistir fyrir skútumennina svo þeir gætu siglt til baka. Þá játaði Arnar Gústafsson að hafa átt að taka við pakka, sem hann ætlaði að geyma á sumarbústaðarlandi foreldra sinna í Rangárvallasýslu. Hann sagðist hins vegar ekki hafa vitað hvað í pakkanum var.
Aðalmeðferð í málinu verður 31. janúar.
Innlent »
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
- Þrír forsætisráðherrar á sólarhring
- Lífeyrissjóðir bjóða í krónur
- Þór er kominn til Noregs
- Ýsan var dýrari en þorskurinn
- Vilja breyta skipan á höfuðborgarsvæðinu
- Fljótsdalshérað vann Hveragerði
- Æfa í þröngu, köldu og leku húsnæði
- Vel á annað þúsund á Bessastöðum
- Akureyrarstofa óánægð með Alþingi
- Fíkniefni ætluð fanga fundust
- Meirihluti vill kosningar í vor
- Gáleysi að fara upp lausan stiga
- Stuðningsmenn Sigurðar Árna boða fund
- Miklaborg hreinsuð af ásökunum
- Karl á áttræðisaldri í haldi
- Frystir með kvöldinu
- Handtekinn vegna sprengjumáls
- Náð samkomulagi um vaxtabætur
- Hnífstungumaður áfram í gæsluvarðhaldi
- Á fimmta tug umsókna um starf
-
Keppt í hugviti
- Greiddi barni fyrir vændi
- Margt um manninn á Bessastöðum
- Tilraunaverkefni í vinnumiðlun
- Samstaða gerir athugasemd við Samstöðu
- Vilja framkvæmdastjóra á skrifstofuna
- Stefna að opnun í Skálafelli
- Boðuð á fund í Reykjavík
- Skipulagsmálum víða áfátt
- Bleikjueldi ekki háð umhverfismati
- Ekið á stúlku á Akureyri
- Karl biskup í Kenía
- Bjóða brúðhjónunum til Íslands
- Um 65% með leka púða
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 31. janúar 2008, Innlent Aðalmeðferð í Pólstjörnumáli
- Þriðjudagur, 15. janúar 2008, Innlent Ætlaði að fela fíkniefnin á sumarbústaðarlandi
- Föstudagur, 14. mars 2008, Innlent Játaði fjársvik hjá TR
- Miðvikudagur, 4. júní 2008, Innlent Tveir segjast saklausir í hraðsendingarmáli
- Miðvikudagur, 16. janúar 2008, Innlent Réttarhöld að hefjast í Pólstjörnumálinu
-
Veður hamlar aðgerðum á strandstað
-
Íranar fagna byltingarafmæli
-
Rómarborg snæviþakin
-
Ofbeldið í Sýrlandi eykst
-
Adele í viðtali við 60 mínútur
-
Ingvar: Við verðum að vinna síðustu þrjá
-
Steinar Páll: Þetta var mjög gaman
-
Samsteypustjórnin samþykkti skilyrðin




































