Hafnar orðrómi um fatakaup Framsóknarflokksins
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„Ég tók við starfi framkvæmdastjóra um áramótin 2006-2007 og ég kannast ekki við þetta frá þeim tíma og ekki heldur frá tíð forvera míns, " segir Sigfús Ingi Sigfússon, framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, um orðróm um að forystumenn flokksins í Reykjavík hafi keypt sér föt á kostnað flokksins fyrir borgarstjórnarkosningar, líkt og Guðjón Ólafur Jónsson, fyrrum þingmaður Framsóknarflokksins, segir að hafi gengið innan flokksins.
Í bréfi, merkt trúnaðarmál, sem Guðjón Ólafur sendi til flokksfélaga sinna í Reykjavík, dagsett 15. janúar síðastliðinn, talar hann um versnandi stöðu flokksins, sérstaklega í Reykjavík, og að nú þurfi „menn að taka höndum saman eigi að takast að rífa hann upp úr þeim djúpa öldudal sem hann er nú í." Þar segir jafnframt að misklíð meðal framsóknarmanna hafi leitt til áhugaleysis flokksmanna.
Guðjón víkur einnig að orðrómi sem hafi gengið innan Framsóknarflokksins um „að forystumenn okkar í borgarstjórn hafi fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006 keypt sér föt fyrir hundruð þúsunda á kostnað flokksins".
„Mér finnst þetta sorglegt og ekki til að auka traust fólks á pólitísku starfi eða laða fólk til fylgis við stjórnmálaflokka þegar málflutningur og skeytasendingar eru með þessum hætti," segir Björn Ingi Hrafnsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, í samtali við Morgunblaðið. „Ég ætla ekki að svara þessu á opinberum vettvangi því mér finnst það segja sína sögu að bréfritari kjósi ekki að afla sér upplýsinga, heldur setji málið fram með þessum hætti í bréfum í þúsunda tali," segir Björn Ingi.
Guðjón Ólafur Jónsson segist hafa sent bréfið út til að þakka fyrir þann stuðning sem hann hafi fengið á meðan hann var þingmaður flokksins og til að setja fram hugleiðingar um stöðu Framsóknarflokksins í Reykjavík „og ég held að það sé full ástæða til að ræða hana, það hafa margir haft samband og fagnað því að ég hafi sett þá umræðu í gang," segir Guðjón. Hann segist hafa sent bréfið út sem trúnaðarmál og treyst flokksmönnum til að fara með það sem slíkt. Varðandi hlutann um orðróm vegna fatakaupa „vildi ég vekja athygli á því að þetta væru hvimleiðar sögur, en það hafa einnig gengið sögur um mig og aðra," segir Guðjón.
Bloggað um fréttina
-
Snorri Bergz Ekki er ástandið gott! -
Guðmundur Óli Scheving Er Björn Ingi á leið í Frjálslyndaflokkinn eða Íslandshreyfinguna ? -
Stefán Friðrik Stefánsson Vinslit í Framsókn - dauðateygjur í Reykjavík? -
Kjartan Vídó Nýju föt keisarans -
Hulda Dagrún Grímsdóttir Nota restina!!! -
Ásdís Sigurðardóttir Fyrir mér sem gömlum bókara er málið auðleyst. -
Gísli Foster Hjartarson Er enn pláss í mátunarklefanum?
Innlent »
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 18. janúar 2008, Innlent Gagnrýnir fatapeninga framsóknarmanna
- Þriðjudagur, 22. janúar 2008, Innlent Ekkert óeðlilegt við fatakaupin
- Sunnudagur, 20. janúar 2008, Innlent Með mörg hnífasett í bakinu
- Föstudagur, 25. janúar 2008, Innlent Mikið áfall fyrir Framsóknarflokkinn
- Mánudagur, 21. janúar 2008, Innlent Harmar persónulegar árásir
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur





































