Nova kærir Símann til Samkeppniseftirlits

Árvakur/Frikki
Fjarskiptafélagið Nova ehf. hefur lagt fram kæru til Samkeppniseftirlitsins á hendur Símanum hf. fyrir meinta ólögmæta misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Tilefni kærunnar er hækkun Símans á verði á símtölum frá viðskiptavinum Símans í farsímakerfi Nova.

Telur Nova að með því að hækka verð á símtölum til eins samkeppnisaðila brjóti Síminn samkeppnislög. Haft er eftir Liv Bergþórsdóttur, framkvæmdastjóra Nova, í tilkynningu að Síminn telji sér augljóslega ógnað með innkomu Nova á markað og beiti markaðsráðandi stöðu sinni á ólögmætan hátt til að hindra nýja samkeppni.

Í tilkynningunni segir, að verðhækkun Símans, sem vísað sé til í kærunni, hafi tekið gildi 15. desember 2007 en Nova kom inn á íslenskan farsímamarkað tveimur vikum fyrr. Telji forsvarsmenn Nova augljóst að áðurnefnd verðhækkun Símans, sem eingöngu snúi að símtölum í kerfi Nova en ekki annarra fyrirtækja, hafi verið gerð í því skyni að hindra samkeppni. 

Nova segist telja brot Símans sérlega alvarlegt, ekki síst í ljósi þess að þegar Síminn tilkynnti um verðhækkun sína í farsímakerfi Nova hafi félagið látið  í veðri vaka, í fréttatilkynningu sem send var fjölmiðlum, að Nova ráði þeirri verðlagningu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert