Dómari fer fram á 4 milljónir kr. í bætur

Fyrrverandi dómstjóri við Héraðsdóm Norðurlands eystra á Akureyri hefur farið fram á 4 milljónir króna í bætur frá manni sem hann úrskurðaði í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi laust fyrir jól, vegna ummæla hins dæmda í fréttaviðtali strax eftir að dómur var kveðinn upp.

Þorsteinn Hjaltason, héraðsdómslögmaður á Akureyri, var skömmu fyrir jól fundinn sekur, ásamt þremur öðrum, um að hafa nýtt sér með ólöglegum hætti kerfisvillu í gjaldeyrisviðskiptakerfi Glitnis, sem var til komin vegna forritunarmistaka bankastarfsmanna.

Ásgeir Pétur Ásgeirsson, þáverandi dómstjóri, kvað upp dóminn en hann lét af störfum fyrir aldurs sakir um áramót. Þetta var því hans síðasta mál sem dómari.

Þorsteinn Hjaltason sagði í samtali við fréttamann Stöðvar 2 þegar hann kom úr réttarsal eftir uppkvaðningu dómsins að Glitnir virtist hafa ægivald yfir ríkislögreglustjóra. Í viðtalinu, sem sýnt var á Stöð 2 sama kvöld, spurði fréttamaður: „Telurðu að það sem þú kallar í raun ægivald Glitnis hafi haft áhrif á bæði ríkislögreglustjóra og dómara?“

Og Þorsteinn svaraði: „Já, já, það er ekki nokkur einasti vafi um það.“

Við þessi ummæli er dómarinn ósáttur, hefur kært Þorstein vegna þeirra og krafist 4 milljóna króna í bætur.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert