UJR harma ákvörðun Ólafs
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík (UJR) hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir miklum vonbrigðum með ákvörðun Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa, að slíta samstarfi sínu við fráfarandi meirihluta í borgarstjórn og mynda nýjan meirihluta með Sjálfstæðisflokki. Segir í yfirlýsingunni að þær ástæður sem Ólafur hefur gefið fyrir samstarfsslitunum séu afar ótrúverðugar.
Ljóst sé að borgarfulltrúinn, sem sneri aftur til starfa á vettvangi borgarstjórnar fyrir einungis sjö vikum, hafi ekki gefið sér mikinn tíma til að koma stefnumálum sínum í framkvæmd innan fráfarandi borgarstjórnarmeirihluta. Vert sé því að velta því upp hversu mikil heilindi hafi legið að baki þátttöku Ólafs í meirihlutanum, sem hann sjálfur hafði frumkvæði að því að mynda á sínum tíma.
Í yfirlýsingunni segir:
„UJR harmar jafnframt afstöðu nýs meirihluta til uppbyggingar í Vatnsmýrinni og færslu Reykjavíkurflugvallar enda er þar um að ræða eitt brýnasta hagsmunamál komandi kynslóða Reykvíkinga. Er það ólíðandi að Vatnsmýrinni geti þannig verið haldið í gíslingu vegna valdabrölts nýs meirihluta.
Af hálfu Sjálfstæðismanna er það mikill ábyrgðarhluti að efna til svo veikbyggðs meirihlutasamstarfs, sem nýtur ekki einu sinni stuðnings varamanns verðandi borgarstjóra. Atburðarrás gærdagsins, sem og sá hringlandaháttur sem er líklegur vegna mismunandi afstöðu aðal- og varaborgarfulltrúa F-listans til meirihlutasamstarfsins, mun hafa afar neikvæðar afleiðingar í för með sér á stjórn Reykjavíkurborgar og er síst til þess fallið að styrkja trú almennings á borgarstjórn og störfum hennar.
Ungir jafnaðarmenn í Reykjavík telja ennframt ámælisvert að Sjálfstæðismenn styðji nú til borgarstjóra oddvita lista sem naut einungis 10% fylgis í síðustu borgarstjórnarkosningum og mældist raunar með einungis 3% stuðning í nýlegri skoðanakönnun. Gengur það bersýnilega þvert á vilja borgarbúa og er til marks um að forvígismenn hins nýja meirihluta taki eigin völd fram yfir hagsmuni Reykvíkinga. "
Bloggað um fréttina
-
Snorri Bergz Allt er betra en Rugl-listinn -
Pétur Guðmundur Ingimarsson Alveg meiriháttar ungliðar -
Theódór Norðkvist Stórgóð ályktun -
Magnús V. Skúlason Það er kominn tími til að ungliðahreyfingar . . .
Innlent »
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 2. september 2008, Innlent Vill láta kjósa á ný um Reykjavíkurflugvöll
- Laugardagur, 13. október 2007, Innlent Getur setið sem forseti borgarstjórnar
- Þriðjudagur, 12. ágúst 2008, Innlent Vilja styrkja meirihlutann í Reykjavík
- Miðvikudagur, 31. janúar 2007, Innlent Margrét oddviti borgarstjórnarflokks F-listans í fjarveru Ólafs
- Sunnudagur, 17. ágúst 2008, Innlent 26,2% segjast styðja nýjan meirihluta
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































