Steingrímur J. fyrsti karlinn til að gegna formennsku

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon. Ómar Óskarsson

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, var í gær valinn formaður jafnréttisnefndar Evrópuráðsþingsins. Steingrímur er jafnframt fyrsti karlmaðurinn til að sinna formennsku í nefndinni.

Nefndin er yngsta nefndin á Evrópuráðsþinginu og var stofnuð árið 1998. Jafnréttisnefndin fjallar um jafnréttismál í víðum skilningi, kvenréttindi og baráttuna gegn ofbeldi gegn konum. Hún berst fyrir aukinni þátttöku kvenna á öllum sviðum samfélagsins. Á síðustu tveimur árum hefur nefndin beitt sér mikið í málefnum er lúta að mansali og vændi, samkvæmt tilkynningu.

Evrópuráðsþingið var stofnað árið 1949. Alls eiga 47 ríki aðild að þinginu. Hlutverk þess er að standa vörð um mannréttindi, lýðræði og réttarríkið.

Evrópuráðsþingið heldur vikulanga þingfundi fjórum sinnum á ári. Málefnanefndir þingsins eru alls 10 og halda flestar fundi 4-8 sinnum á ári utan þingfunda. Fimm flokkahópar þingsins skipta með sér formennsku í nefndum þingsins samkvæmt samkomulagi sem þeir gera með sér. Val á þingmönnum til að sinna formennsku fyrir hönd flokkahópanna fer síðan fram innan þeirra eigin raða.

Málefnanefndirnar vinna skýrslur og á grundvelli þeirra ályktanir, tilmæli og álit sem þingið tekur síðan til umræðu og afgreiðslu. Mál, sem eru samþykkt í þinginu, er komið áleiðis til aðildarlanda Evrópuráðsþingsins í gegnum ráðherranefnd Evrópuráðsins eða beint í þeim tilvikum sem þingmenn taka málin upp í sínum þjóðþingum. Auk þess sinnir Evrópuráðsþingið kosningaeftirliti, velur dómara til setu í Mannréttindadómstól Evrópu og stendur fyrir baráttuherferðum um ákveðin mál. Eins og er standa yfir herferðir gegn heimilisofbeldi og mansali.

Auk Steingríms skipa Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins þau Guðfinna S. Bjarndadóttir og Ellert B. Schram.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert