Stjórnvöld í Katar hafa áhuga á náinni samvinnu við Íslendinga

Emírinn af Katar tekur á móti forseta Íslands og iðnarráðherra …
Emírinn af Katar tekur á móti forseta Íslands og iðnarráðherra í upphafi fundarins í morgun.

Í viðræðum forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar og emírsins af Katar, Sheikh Hamad Bin Khalifa Al Thani, kom fram eindreginn vilji þjóðarleiðtoga Katar til að kanna rækilega möguleika á náinni samvinnu við Íslendinga á sviði banka- og fjármála, heilbrigðismála og rannsókna í læknavísindum, nýtingu hreinnar orku, háskólamenntunar og rannsókna ásamt því að þróa samræður um hvernig smærri ríki eins og Ísland og Katar gætu í sameiningu haft áhrif á stefnur og strauma á alþjóðavísu, samkvæmt tilkynningu frá forsetaembættinu.

Forseti Íslands er í opinberri heimsókn í Katar.

Í viðræðum forseta Íslands og emírsins af Katar og á fundum iðnaðarráðherra Össurar Skarphéðinssonar og orkumálaráðherra Katar var farið yfir fjölmörg verkefni sem íslenskir bankar og fyrirtæki, háskólar og rannsóknastofnanir gætu komið að. Leiðtogar Katar vilja vinna hratt að þessum verkefnum og óskuðu eftir því að á næstu sex mánuðum næðust niðurstöður varðandi ákveðin sameiginleg verkefni, meðal annars á sviði fjárfestinga. Einnig yrði komið á reglubundnum tengslum milli háskóla og rannsóknastofnunar Katar, Qatar Foundation, og vísindasamfélagsins á Íslandi. Innan þessarar stofnunar eru allir helstu háskólar og rannsóknastofnanir landsins, og mun hún senda fulltrúa sína til Íslands á næstu vikum.

Hefur áhuga á að koma til Íslands

Leiðtogar Katar lögðu áherslu á að þessi nýja samvinna Íslands og Katar væri í anda stefnunnar um samstarf smárra ríkja. Nauðsynlegt væri að slík ríki beittu sér fyrir nýjungum á alþjóðavettvangi, bæði í viðskiptum, vísindum og alþjóðlegri stefnumótun. Ákveðið var að forseti Íslands og emírinn af Katar hefðu með sér náið samráð á næstu vikum og mánuðum. Jafnframt lýsti emírinn áhuga á að koma í heimsókn til Íslands næsta sumar, samkvæmt tilkynningu.

Samningur um samstarf

Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra og fjármálaráðherra Katar Yousef Kamal undirrituðu fyrr í dag rammasamning um samstarf ríkjanna á sviði efnahags-, viðskipta- og tæknimála og jafnframt samkomulag um að greiða fyrir samskiptum á sviði ferðamála.

Opinber heimsókn forseta Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrúar hófst með  móttökuathöfn á flugvellinum í Katar síðdegis í gær þar sem emírinn af Katar og kona hans Sheikha Mozah tóku á móti hinum íslensku gestum. Forsetahjónin sátu svo í gærkvöldi kvöldverð ásamt emírshjónunum og dóttur þeirra þar sem ítarlega var rætt um tækifæri þjóðanna til árangursríkrar samvinnu á komandi árum.

Í morgun var formlegur viðræðufundur forseta og emírsins ásamt íslensku sendinefndinni og fjölmörgum ráðamönnum Katar þar sem nánar var farið yfir einstök verkefni og næstu skref ákveðin.

Forseti heimsótti nýja skrifstofu Kaupþings í Doha, höfuðborg Katar en Kaupþing er fyrsti norræni bankinn sem opnar skrifstofu í landinu. Þá kynnti forseti sér starfsemi Fjármálamiðstöðvar Katar.

Í kvöld býður fjármálaráðherra Katar, Yousef Kamal, til umræðufundar um tækifæri smárra ríkja í framtíðinni og munu sækja hann fjölmargir forystumenn úr viðskiptalífi Katar auk íslensku sendinefndarinnar og fulltrúa þeirra íslensku fyrirtækja sem fylgja forseta í þessari opinberu heimsókn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert