Meirihluti í borginni: Vinnubrögð þau sömu og í REI

Svandís Svavarsdóttir. stækka

Svandís Svavarsdóttir. mbl.is/Golli

„Ég áttaði mig á því áðan þegar ég var að tala um atburði undanfarinna daga að þetta er mjög kunnugleg orðræða. Ég er að tala um þetta eins og ég talaði um REI-málið á sínum tíma,“ segir Svandís Svavarsdóttir, oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn Reykjavíkur, um myndun nýs meirihluta Sjálfstæðisflokks og F-lista.

„Þarna er verið að blekkja, þarna er verið að vinna hratt, þarna er verið að vinna með leynd og í samráðsleysi án umboðs. Það eru sömu fingraförin í þessu máli og í REI-málinu og þau eru Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.“

Ólafur segir ósatt

Ólafur F. Magnússon, verðandi borgarstjóri, fullyrti á þriðjudag að Svandísi Svavarsdóttur hefði verið boðin staða borgarstjóra færi hún í meirihlutasamstarf með sjálfstæðismönnum. Svandís segir þetta vera ósatt. „Þetta var sagt við mig fyrst eftir að nýr meirihluti tók við í haust. En það er ósatt að það hafi verið einhverjar samræður í gangi á síðustu dögum og vikum.“

Margrét Sverrisdóttir, varaborgarfulltrúi F-listans, tekur í sama streng. „Þetta virðast vera blekkingar á báða bóga, sama óðagotið og litla samráðið sem var í REI-málinu. Ég held að það liggi fyrir, líkt og Ólafur staðfesti, að honum var sagt að það yrði myndaður annar meirihluti ef hann yrði ekki fyrri til. Þetta eru ekkert annað en blekkingar.“

Hálftíma fyrir blaðamannafund

24 stundir sögðu frá því í gær að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hefðu ekki vitað af því að Magréti hugnaðist ekki að starfa fyrir nýjan meirihluta fyrr en innan við klukkustund áður en myndun hans var tilkynnt.

Samkvæmt heimildum 24 stunda var varaborgarfulltrúum flokksins ennfremur ekki tilkynnt um að nýr meirihluti hefði verið myndaður fyrr en klukkan hálfsjö á mánudag, hálftíma áður en blaðamannafundurinn átti að hefjast.

Í hnotskurn
Tilkynnt var um myndun nýs meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur á mánudag. Að honum standa Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Ólafur kom einnig að myndun fráfarandi meirihluta í borgarstjórn í október síðastliðnum.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Frá Krýsuvík.

Fylgjast þarf með Krýsuvík

17:01 Sprungugos í norðurhluta þess sprungukerfis, sem liggur frá megineldstöðinni í Krýsuvík, geta hugsanlega komið upp í Heiðmörk eða í grennd við Elliðavatn og því er full ástæða til að fylgjast náið með því sem gerist á Krýsuvíkursvæðinu. Meira »

Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru

16:51 Fylgi Ólafs Ragnars Grímssonar og Þóru Arnórsdóttur er jafnt samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar MMR sem birtar voru í dag. Samtals sögðust 41,2% ætla að kjósa hvorn forsetaframbjóðandann. Meira »

Harma óvæginn fréttaflutning

16:49 Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur leggur ríka áherslu á að mótuð verði vöktunar- og viðbragðsáætlun vegna umhverfismála á svæðinu í grennd við Hellisheiðarvirkjun. Stjórnin harmar jafnframt óvæginn fréttaflutning um tjarnarmyndun í grennd við svæðið. Meira »

Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir

Geir H. Haarde
15:59 „Þetta leggst bara mjög vel í mig,“ segir Geir H. Haarde í samtali við mbl.is en tilkynnt var í dag að hann hefði gengið til liðs við Opus lögmenn í Austurstræti. Meira »

Átak gegn ölvunarakstri

Úr safni.
15:29 130 ökumenn voru stöðvaðir í miðborginni í gærkvöld í sérstöku umferðareftirliti lögreglunnar. Einn þeirra reyndist ölvaður við stýrið og á viðkomandi ökuleyfissviptingu yfir höfði sér. Þremur til viðbótar var gert að hætta akstri sökum þess að þeir höfðu neytt áfengis en voru þó undir refsimörkum. Meira »

Farinn frá Landsbankanum

Jens Garðar Helgason
16:12 „Ég tek ekki ákvörðun fyrir aðra, en ég stofnaði í dag reikning í Sparisjóði Norðfjarðar og ætla að flytja öll mín viðskipti frá Landsbankanum.“ Þetta segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs í Fjarðabyggð, í samtali við mbl.is. Meira »

Þjófar í gæsluvarðhald

15:39 Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 1. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og var það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Mennirnir voru handteknir í gærmorgun eftir að þeir höfðu brotist inn í hús í Grafarvogi en þýfi fannst í fórum þeirra. Meira »

Betur má ef duga skal

15:20 Umferðarráð telur mikilvægt að ekki verði slakað á kröfum til að viðhalda og byggja áfram upp öruggt og skilvirkt vegakerfi. Það hvetur stjórnvöld til að standa vörð um umferðaröryggi allra landsmanna við framkvæmdir í vegagerð. Meira »

Framsetning flugmiðaverðs óskýr

Flugvél Iceland Express í höfn
14:40 Auðvelt er að gera verðsamanburð á milli bókunarvéla flugfélaganna á vefnum en mismunandi er hvernig verð flugmiða er sett þar fram. Getur þannig reynst viðskiptavinum flókið að átta sig á því í hverju hin ýmsu aukagjöld, sem eru hluti af fargjaldi, felast. Meira »

Meta lögmæti samningsins

Sveitarfélagið Garður.
14:33 Nýr meirihluti í bæjarstjórn Garðs ætlar að láta meta lögmæti samnings sem fyrri meirihluti gerði við Ásmund Friðriksson bæjarstjóra. Auglýst verður eftir nýjum bæjarstjóra í fjölmiðlum á morgun. Meira »

Kærði undirskriftafölsun

Daníel Guðjónsson yfirlögregluþjónn sést hér lengst til vinstri en við hlið hans standa Björn Jósef ...
14:37 „Manni líður ekki vel með það. Þetta er leiðinleg tilfinning og mér finnst ástæðulaust að sitja undir því og ætla ekki að gera það, þess vegna kærði ég þetta til að fara fram á rannsókn á því,“ segir Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjónn á Akureyri, í samtali við blaðamann mbl.is en Daníel er á meðal þeirra einstaklinga sem settir voru á meðmælendalista Ástþórs Magnússonar að sér forspurðum. Meira »

Auðveldar fólki að sækja um búsetu

Úr safni.
14:11 Breytt fyrirkomulag við mat á þörf fólks fyrir dvalar- eða hjúkrunarrými tekur gildi 1. júní. Vistunarmatsnefndir dvalar- og hjúkrunarrýma verða sameinaðar og í þeirra stað verður ein nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi; færni- og heilsufarsnefnd, sem metur þörf fólks fyrir þessi úrræði. Meira »

Rætt um að kaupa notaðar þyrlur

Þyrla Landhelgisgæslunnar, TF LÍF
13:50 Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra kynnti í ríkisstjórn í morgun hugmyndir um að kaupa tvær notaðar björgunarþyrlur sambærilegum þeim sem Landhelgisgæslan er nú með í notkun. Þessi kostur er ódýrari en að kaupa nýjar þyrlur. Meira »

Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna

Í ár tóku 250 bekkir víðsvegar um landið þátt í samkeppninni.
13:19 Úrslit í samkeppninni Tóbakslaus bekkur liggja fyrir en alls fá bekkir frá níu skólum á landinu verðlaun. Keppnin var haldin meðal meðal 7. og 8. bekkja í grunnskólum landsins. Meira »

„Hvatning til okkar beggja“

Forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff.
12:12 „Þetta er ánægjuleg staðfesting á því sem við Dorrit höfum fundið á fundum, vinnustöðum og á viðræðum við fólk undanfarið,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, um nýja skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 þar sem hann mældist með 53,9% fylgi. Meira »

Sjálfstæðismenn ósammála um göngin

Frá fundi fjárlaganefndar Alþingis.
13:26 Sjálfstæðismenn í fjárlaganefnd klofnuðu í afstöðu til frumvarps um jarðgöng undir Vaðlaheiðargöng. Ásbjörn Óttarsson og Illugi Gunnarsson leggjast gegn frumvarpinu en Kristján Þór Júlíusson styður það. Meira »

Hjólin fá að snúast að nýju myndskeið

Hjol
12:23 Í dag hófst formlega hjólasöfnun Barnaheilla og flugfélagsins WOW þar sem landsmenn geta gefið gömul hjól með því að koma þeim á Sorpu en Mæðrastyrksnefnd mun sjá dreifingu hjólanna. Hjólin mega vera biluð því sérfræðingar munu lagfæra og gera við þau. Nemendur í Álfhólsskóla gáfu ónýtt hjól í dag. Meira »

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík

Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
11:51 Óvanaleg sjón blasti við íbúum Súðavíkur í morgun, en þá hafði einn íbúi bæjarins brugðið á það ráð að flagga fána Landsbankans öfugt, og í hálfa stöng. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta. Ársreikningar, skattar. Fyrirtæki, einstaklingar...
Úrval af fjarstýrðum þyrlum og m.fl.
Erum með fjarstýrðar þyrlur í miklu úrvali. Netlagerinn slf Dugguvogur 17-19, 2....
Leiðiskrossar til sölu
Mjög fallegir leiðiskrossar til sölu galvanseraðir og pólýhúðaðir. Upplýsingar í...
Til sölu Hankook dekk
225/75 R16 ca hálfslitin. Verð 30 þús. Uppl. í síma 898 4875...
 
Aðalfundur alliance

Aðalfundur 2012 Aðalfundur Alliance...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...