Ólafur kjörinn borgarstjóri

Lögreglumenn komu í Ráðhúsið þegar hlé var gert á fundinum. stækka

Lögreglumenn komu í Ráðhúsið þegar hlé var gert á fundinum. mbl.is/Júlíus

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, var kjörinn borgarstjóri á aukafundi borgarstjórnar í dag með 8 atkvæðum gegn 7. Um leið og Hanna Birna Kristjánsdóttir, nýkjörinn forseti borgarstjórnar lýsti kjörinu púuðu áhorfendur í salnum hátt og hrópuðu slagorð. 

Gerði Hanna Birna þá hlé á fundinum en hún hafði áður ítrekað sagt, að salurinn yrði rýmdur ef áhorfendur yrðu ekki við tilmælum um að hafa hljóð.

Lögreglumenn komu á áhorfendapallana en beittu sér ekki. Var starfsmönnum Ráðhússins þess í stað falið að reyna að koma áhorfendunum út með góðu. Mæltust þeir til þess að fólkið yfirgæfi pallana en því svar svarað með hrópum: Við förum ekki. Heldur er þó færra á áhorfendapöllunum en í upphafi borgarstjórnarfundar.

Óvíst var hve lengi fundarhléið myndi standa.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Jón Baldvin Hannibalsson.

Baðst afsökunar fyrir 12 árum

12:17 „Ég hef ekki séð blaðið og veit ekki hvað stendur í því,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og sendiherra um umfjöllun í Nýju lífi þar sem systurdóttir eiginkonu hans segir frá bréfum sem hann sendi henni er hún var á unglingsaldri. Meira »
Salvör Nordal, fyrrum formaður Stjórnlagaráðs, ásamt fleiri fulltrúum í ráðinu.

Gerir alvarlegar athugasemdir

11:52 Fram koma alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Alþingis á frumvarpi stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá í bréfi fyrrverandi formanns ráðsins, Salvarar Nordal, til forsætisnefndar þingsins í kjölfar þess að samþykkt var á Alþingi í gær að vísa málinu til ráðsins á ný. Meira »

Hundarnir finna dópið strax myndskeið

230212 logguhundar
12:00 Undanfarnar þrjár vikur hafa hundar verið í strangri þjálfun í Lögregluskólanum. MBL Sjónvarp fylgdist með einu lokaprófinu þegar þeir leituðu að fíkniefnum sem komið hafði verið fyrir í æfinga-íbúð skólans. Hundarnir nýtast þó til fleiri verka en niðurskurður hefur verið í hundahaldi lögreglunnar. Meira »

D-vítamínbætt mjólk á markað

D-vítamínbætt léttmjólk.
11:44 Mjólkursamsalan, MS, hefur á næstu dögum sölu á D-vítamínbættri léttmjólk. Er það gert samkvæmt ráðleggingum Embættis landlæknis og rannsóknastofu í næringarfræði við HÍ og Landspítala. Meira »

Unnur Brá: Eina lausnin?

Unnur Brá Konráðsdóttir
11:33 „Svo virðist sem forsætisráðherra hafi aðeins eitt svar við öllum spurningum og eina lausn á öllum vanda, það er að Ísland gangi í ESB og taki upp evru", segir Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ummerki um olíu frá Júratímabilinu

Drekasvæðið.
11:54 Nýjar rannsóknir á Drekasvæðinu sýna ummerki um olíu frá Júratímabilinu á hafsbotni og staðfesta tilvist jarðlaga frá miðlífsöld. Þetta kemur fram í frétt á vef Orkustofnunar. Meira »

Telja neytendur eiga betri rétt

11:36 Hagsmunasamtök heimilanna áttu fund með efnahags- og viðskiptanefnd í gær þar sem rætt var um nýfallinn Hæstaréttardóm um gengistryggð lán. Leggja samtökin til að Samtök fjármálafyrirtækja verði leyst upp með tilliti til þess að þar væri um grundvöll fyrir óheilbrigðan og skaðlegan samráðsvettvang. Meira »

Tæplega helmingur ók of hratt

Hraðamælingar lögreglu.
11:31 Tæplega helmingur ökumanna sem fór um Suðurgötu í Reykjavík á einni klukkustund eftir hádegið í gær ók of hratt eða yfir afskiptahraða. Á meðan lögregla vaktaði götuna fóru 122 ökutæki akstursleiðina og 48% þeirra voru á of mikilli ferð. Meira »

Umgekkst vændiskonur í opinberum ferðum

Jón Baldvin Hannibalsson
11:14 Eitt bréfanna sem Jón Baldvin Hannibalsson sendi ungri systurdóttur eiginkonu sinnar var sent frá Tallinn í Eistlandi árið 2001. Þá var hann þar staddur í opinberum erindagjörðum sem heiðursræðumaður á hátíðarsamkomu, sem var skipulögð af upplýsingaskrifstofu Norræna ráðherraráðsins þar í landi. Hann lýsir þar samskiptum sínum við vændiskonur. Meira »

„Ég er komin með nóg“

Úr Nýju lífi
11:03 „Ég er komin með nóg. Reglulega kemur upp hjá mér reiði, sorg eða biturð yfir þessu máli og nú langar mig að koma því frá mér,“ segir Guðrún Harðardóttir, sem í viðtali í Nýju lífi segir frá bréfum sem eiginmaður móðursystur hennar, Jón Baldvin Hannibalsson, sendi henni er hún var unglingur. Meira »

Vatnsleki vegna ræktunar

Kannabisræktun.
11:05 Lögregla höfuðborgarsvæðisins stöðvaði kannabisræktun í íbúð fjölbýlishúss í miðborg Reykjavíkur í fyrradag. Tilkynnt var um mikinn vatnsleka í húsinu og var slökkviliðið kallað á vettvang, en lekann mátti rekja til ræktunarinnar. Karlmaður á þrítugsaldri var yfirheyrður vegna málsins. Meira »

Allt að 25% verðmunur

11:03 Bónus var oftast með lægsta verðið þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð í þremur lágverðverslunum og fjórum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæðinu og Ísafirði 20. febrúar. Hæsta verðið var oftast að finna hjá Samkaupum-Úrvali eða í um helmingi tilvika. Meira »

„Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“

Þór Saari.
10:58 Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar skrifar á Facebook að Pawel Bartozsek sem sat í stjórnlagaráði og hefur gagnrýnt meðferð þingsins á tillögum þess, virðist eitthvað misskilja ferlið við breytingar á stjórnarskránni. Þór skorar á Pawel að halda áfram að vinna með stjórnlagaráði. Meira »

Með kannabisgræðlinga í bíl

Kannabisplöntur.
10:46 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitaði í húsi manns eftir að á fjórða tug kannabisgræðlinga fundust í bíl hans í fyrradag. Við húsleitina fundust um 900 grömm af tilbúnu maríjúana og um 1,4 kg af öðrum kannabisefnum. Maðurinn hefur áður komist í kast við lögin. Meira »

Efla þarf rannsóknir á höfunum

Ólafur Ragnar Grímsson.
10:34 Nauðsynlegt er að efla rannsóknir á höfunum og auðlindum þeirra, sagði Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands í setningarræðu á heimsþingi um höfin í morgun sem haldið er í Singapúr. Hann rakti einnig reynslu Íslendinga af veiðum á grundvelli vísindalegra vísinda og þróun samstarfs á Norðurslóðum. Meira »

Perlan góður kostur fyrir safn

Perlan
10:51 Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningamálaráðherra, sagði á Alþingi í dag, að hún hefði rætt það óformlega við stjórnarmenn Orkuveitu Reykjavíkur að Perlan yrði nýtt undir Náttúruminjasafn Íslands, verði ekki af sölu hennar. Hún segir Perluna áhugaverðan kost fyrir safn af því tagi. Meira »

Rammaáætlunin tilbúin á næstu dögum

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
10:44 Fram kom í máli Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Alþingi í dag að gert væri ráð fyrir því að rammaáætlun um vernd og orkunýtingu náttúrusvæða yrði tilbúin á næstu dögum. Meira »

Bað hana að leyna bréfunum

Jón Baldvin Hannibalsson
10:31 Jón Baldvin bað systurdóttur eiginkonu sinnar að leyna bréfum sem hann sendi henni næstu áratugina. Ríkissaksóknari komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri um samfellda háttsemi að ræða og því væru hin meintu eða ætluðu brot vegna bréfanna frá 1998 fyrnd. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hornsófi með skemmli
Hornsófi og fótaskemill með geymsluhólfi. fæst á 70.þús hægt að taka áklæði af, ...
50 m2 - Tveggja herbergja íbúð til leigu
50 m2 - íbúð á Kjalarnesi til leigu. Tvö herbergi, eldhús, baðherbergi með aðstö...
Travel Lite pallhýsi
Fyrir japanska, og stærri bíla. Pantanir fyrir næsta vor óskast staðfestar. Sa...
HÓTELHÚSGÖGN
HÓTELHÚSGÖGN NÝVAKI s. 557-2530 korpudalur@centrum.is...
 
Prentsmiður/grafískur miðlari - offset-prentari
Iðnaðarmenn
FagFólk óskast til framtíðarstarfa ...
Starfsmaður óskast í ökutækjaviðgerðir
Iðnaðarmenn
Starfsmaður óskast Stormur ehf. sérh...
Automation mechanic
Iðnaðarmenn
Nortura SA, one of Norway´s largest food...