Fjölmörg útköll vegna foks

Þessi tengivagn fauk á hliðina við Keflavíkurflugvöll í dag.
Þessi tengivagn fauk á hliðina við Keflavíkurflugvöll í dag. Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Björgunarsveitarmenn hafa sinnt hátt í 30 útköllum á Suðurnesjum í dag vegna foks. Gámar, tengivagnar og þakkantar eru á meðal þess sem hafa fokið í dag. Veðrinu hefur hins vegar slotað á Suðurnesjum og er aðgerðum björgunarsveita þar nú lokið.

Ekki er um meiriháttar tjón að ræða og samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu hefur engan sakað. 

Mjög hvasst er víða á Norðvesturlandi og hefur björgunarsveitum borist útköll m.a. frá Búðardal, Stykkishólmi og Dalvík. 

Björgunarsveitarmenn sjást hér að störfum á Suðurnesjum í dag.
Björgunarsveitarmenn sjást hér að störfum á Suðurnesjum í dag. Víkurfréttir/Hilmar Bragi
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert