Veðurofsinn að ná hámarki

Mjög djúp lægð er nú að ganga yfir suðvesturhluta landsins. Gert er ráð fyrir að veðurofsinn nái hámarki þar um hádegi en að veðrið gangi yfir Vestfirði síðar í dag. Áfram verður hvasst um allt land en í nótt og í fyrramálið mun lægja og snúast í 5-10 m/s og él vestanlands. Léttskýjað verður hins vegar austanlands. Hiti verður 0 til 5 stig fram á nótt en síðan verður 0 til 5 stiga frost.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert