Álagningarseðill fasteignagjalda birtur að nýju

Álagningarseðill fasteignagjalda í Reykjavík hefur nú verið birtur í Rafrænni Reykjavík á heimasíðu Reykjavíkurborgar. Þar geta fasteignaeigendur nú nálgast seðilinn á rafrænu formi. Þar er einnig hægt að óska eftir boðgreiðslum við innheimtu fasteignagjalda.

Borgarstjórn Reykjavíkur ákvað 24. janúar sl. að lækka hlutfall fasteignaskatta á  íbúðarhúsnæði úr 0,225% í 0,214% vegna ársins 2008.

Reykjavíkurborg sendir um 60 þúsund álagningarseðla til fasteignaeigenda ár hvert og nú eru þeir í fyrsta sinn aðgengilegir á rafrænu formi. Mikil áhersla er lögð á að  borgin bjóði upp á
umhverfisvæna þjónustu, og má geta þess að álagningarseðlar verða í ár prentaðir á vottaðan umhverfisvænan pappír.

Vefsíða Reykjavíkur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert