Örtröð í Bónus á Seltjarnarnesi

Það var margt um manninn í Bónus á Seltjarnarnesi í …
Það var margt um manninn í Bónus á Seltjarnarnesi í morgun. Árvakur/Helgi Snær

Mikið fjölmenni var í verslun Bónuss á Seltjarnarnesi í morgun, en þar hafa vörur verið seldar með miklum afslætti þar sem loka á versluninni. Mikil röð hafði myndast við verslunina þegar hún var opnuð í morgun og hefur verið örtröð þar síðan.

Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu verslanakeðjunnar verður verslunin opin svo lengi sem vörur eru enn til. Lokun verslunarinnar tengist því að næstkomandi laugardag verður ný Bónus-verslun opnuð við Fiskislóð í vesturbæ Reykjavíkur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert