Spaugstofan sér ekki eftir neinu

Spaugstofan.
Spaugstofan.

Í Spaugstofuþætti síðastliðins laugardagskvölds var fjallað um veikindi Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra á mjög hispurslausan hátt. Sagði Ólafur þáttinn vera „svívirðilega árás“ á sig og fjölskyldu sína og segir Sigmundur Ernir Rúnarsson á bloggi sínu að Ríkisútvarpið hafi dregið upp mynd af „vitfirrtum geðsjúklingi“ og bætti við að farið hafi verið yfir strikið.

Ekki árás á Ólaf

„Mér fannst við ekki fara yfir strikið, enda ekki meiningin að vera með persónulegar árásir á Ólaf, heldur draga dám af fjölmiðlaumfjölluninni í kringum þetta mál allt saman,“ segir Karl Ágúst Úlfsson, forsprakki Spaugstofunnar. „Ég veit af skoðun Ólafs sjálfs, en ég hef ekkert heyrt frá honum. Við höldum bara áfram okkar vinnu, að gera grín að atburðum líðandi stundar. En það er vandlifað í þessum bransa. Ef við bítum ekki nógu fast, fáum við skammir fyrir að vera dauðir úr öllum æðum, en loksins þegar við bítum fast, þá verður allt vitlaust.“

Erfiðlega gekk að ná í þekkta grínista sem séð höfðu þáttinn, til að inna eftir skoðunum. Sveppi sá hann þó og hafði gaman af. „Ég er kannski ekki best til þess fallinn að dæma um hvort menn fari yfir strikið en mér fannst ekkert athugavert við þennan þátt. Þetta er eflaust nýtt fyrir Ólafi, að láta gera grín að sér, en hann þarf að fara að venjast því ætli hann að vera áfram í stjórnmálum, því þar mega menn ekki vera hörundsárir.“

Biðst ekki afsökunar

Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri RÚV, ætlar ekki að biðjast afsökunar á þættinum. „Það hefur engin slík krafa komið inn á borð til mín og ég sé enga ástæðu til þess að skipta mér af þessu máli eins og staðan er núna. Vissulega dönsuðu þeir á línunni en að mínu mati fóru þeir ekki yfir hana. Auðvitað höfum við fengið sterk viðbrögð utan úr bæ, bæði jákvæð og neikvæð, líkt og alltaf þegar viðkvæm málefni eru til umfjöllunar, bæði í Spaugstofunni og Kastljósinu. En þeir hafa ritstjórnarlegt frelsi og engin ástæða til að aðhafast neitt í málinu að fyrra bragði.“
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert