Fjölgar um 160 börn í grunnskólum bæjarins
Nemendum í grunnskólum Reykjanesbæjar hefur fjölgað ört í vetur. Metfjölgun var í haust en þá voru nemendur 130 fleiri en haustið áður og 30 til 40 börn bættust svo við nú í upphafi árs. Mest hefur mætt á Njarðvíkurskóla í þessum sviptingum.
Nú eru um 2.010 börn í sex grunnskólum í Reykjanesbæ, að sögn Eiríks Hermannssonar fræðslustjóra en haustið 2006 voru 1.845 börn við nám. Aukningin er vegna fjölgunar íbúa, ekki síst í nýja hverfinu, Vallarheiði á Keflavíkurflugvelli, og í nýju hverfunum í Innri-Njarðvík. Á Vallarheiði var í fyrra opnaður nýr skóli fyrir yngstu börnin á vegum Hjallastefnunnar og Akurskóli í Tjarnahverfi í Innri-Njarðvík er byggður upp smám saman. Þar eru börn úr nýju hverfunum í fyrsta til áttunda bekk og einn árgangur bætist við næsta haust. Tveir elstu árgangarnir eru enn í Njarðvíkurskóla.
„Þetta hefur gengið merkilega vel,“ segir Eiríkur þegar hann er spurður að því hvernig gengið hafi að taka við þessum mikla fjölda. Hann segir að mesta fjölgunin hafi verið í Njarðvíkurskóla og þar sé kennt í hverjum krók og kima.
Reiknað er með að álagið í Njarðvíkurskóla jafnist út á næstu tveimur árum, að sögn Láru Guðmundsdóttur skólastjóra. Er það vegna þess að útlit er fyrir að lítill árgangur hefji nám við skólann í haust í stað stórs tíunda bekkjar og vegna þess að Akurskóli tekur smám saman við öllum börnum úr hverfunum í Innri-Njarðvík.
Innlent »
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 3. maí 2008, Innlent Hverfisskóli á Vellinum
- Fimmtudagur, 28. febrúar 2008, Innlent Grunnskólanemum fækkar
- Fimmtudagur, 22. febrúar 2007, Innlent Grunnskólanemendum fækkaði milli ára en kennurum fjölgaði
- Þriðjudagur, 3. mars 2009, Innlent Færri nemendur en fleira starfsfólk
- Þriðjudagur, 22. janúar 2008, Innlent Fleiri nemendur í framhalds- og háskólum en áður
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur




































