Menn sem réðust á lögreglu í farbanni
Árás á lögreglumenn í janúar er upplýst. mbl.is/Júlíus
Í greinargerð lögreglunnar kemur fram, að fjórir lögreglumenn, óeinkennisklæddir og á vegum fíkniefnadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, hafi þann 11. janúar haft afskipti af þremur mönnum vegna gruns um fíkniefnamisferli fyrir utan veitingastaðinn Monte Carlo við Laugaveg í Reykjavík.
Þegar lögreglumennirnir voru að ræða við mennina þrjá sáu þeir hvar tveir bílar stöðvuðu og út úr öðrum steig kona, sem gekk að lögreglumönnunum. Var henni kynnt að um lögregluaðgerð væri að ræða og hún beðin um að trufla ekki störf lögreglu. Í sömu andrá réðust fimm karlmenn að lögreglumönnunum með höggum og spörkum og hættu ekki þótt lögreglumennirnir sýndu þeim lögregluskírteini.
Lögreglumennirnir beittu kylfum og varnarúða og tókst að endingu að yfirbuga árásarmennina. Þrír voru handteknir á vettvangi en tveir komist undan og þeir voru handteknir síðar sama dag á heimili sínu í Reykjavík. Voru mennirnir úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Eftir átökin voru tveir lögreglumenn fluttir með sjúkrabíl á slysadeild, annar meðvitundarlaus með heilahristing og tognun í hálsi eftir höfuðhögg, en hinn með ýmsa yfirborðsáverka í andliti. Hinir tveir lögreglumennirnir fóru sjálfir á slysadeild með áverka í andliti.Lögreglan segir að rannsókn málsins sé lokið og komið hafi í ljós að mennirnir fimm hafi veist að lögreglu algjörlega að tilefnislausu með fólskulegum hætti, vitandi að um lögreglumenn væri að ræða.
Annar mannanna, sem Hæstiréttur dæmdi í farbann í dag, viðurkennir að hafa tekið þátt í átökunum en lýsingu hans og lögreglu ber ekki saman. Hinn neitaði að hafa tekið þátt í átökunum en héraðsdómur segir að rökstuddur grunur leiki á að hann hafi tekið þátt í árásinni.
Innlent »
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
- Landspítalinn sker meira niður
- Víða komið fast að þolmörkum
- Vorfundur NATO hefst í dag
- Rækta þarf framúrskarandi nemendur
- Mikið tjón vegna villikattasóttar
- Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda
- Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann
- Þrotabú upp á 95 milljarða
- Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur
- Sökudólgarnir í þorpum og bæjum
- Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli
- Taka undir vantraustsyfirlýsingu
- Kæra úrskurðinn
- Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið
- Félögin telja sig svikin
- Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs
- Saksóknari gaf heimild
- Hafi efni á að sækja um gjaldþrot
- Ólafur Ragnar með mest fylgi
- Bjartviðri á Norður- og Austurlandi
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 12. mars 2008, Innlent Einn dæmdur og tveir sýknaðir af ákæru fyrir árás á lögreglu
- Föstudagur, 11. janúar 2008, Innlent „Algjörlega óviðunandi"
- Föstudagur, 18. apríl 2008, Innlent Hæstiréttur heimilar að taka munnvatnssýni
- Fimmtudagur, 18. desember 2008, Innlent Dæmdur fyrir að ráðast á lögreglumenn
- Föstudagur, 18. janúar 2008, Innlent Úrskurðaðir í farbann
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur





































