Engin meiðsl þegar rúta valt

Engan sakaði í rútuóhappinu.
Engan sakaði í rútuóhappinu. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Mikill viðbúnaður var hafður eftir að tilkynnt var að rúta hefði fokið út af veginum nálægt Hvanná á Jökuldal í dag.

Rútan valt á hliðina í vindhviðu og lenti í skafli.  Lögregla og sjúkralið komu á vettvang, og aðstoðuðu við að koma 16 ungmennum á heilsugæslustöðina á Egilstöðum. 

Að sögn lögreglunnar á Egilstöðum voru ungmennin aðstoðuð við að komast til síns heima eftir að staðfest var að allir væru ómeiddir.

Rúta valt nær Hvanná í Jökuldal í dag.
Rúta valt nær Hvanná í Jökuldal í dag. mbl.is
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert