Reykjanesbraut lokuð

Flughálka er á Reykjanesbraut og er hún lokuð vegna umferðaróhapps að því er segir í fréttaskeyti frá Vegagerðinni um kl. 20. Þá hafa fokskemmdir orðið á klæðningu á Þverárfjallsvegi á milli Skagafjarðar og Húnavatnssýslu.

Færð Á Suðurlandi er hálka, hálkublettir og éljagangur. Hálka og skafrenningur er á Hellisheiði og á Sandskeiði og hálkublettir og éljagangur í Þrengslum.

Mjög blint er í allri Árnessýslu og lítið ferðaveður.

Á Vesturlandi er hálka, éljagangur og hálkublettir.

Á Holtavörðuheiði er hálka og stórhríð . Snjóþekja og éljagangur er á Bröttubrekku. Snjóþekja og éljagangur er á öllu Snæfellsnesi.

Á Vestfjörðum er hálka og éljagangur á stöku stað. Búið er að opna vegina um Eyrarhlíð, Óshlíð og Súðavíkurhlíð og er fólk beðið um að sýna aðgát þar sem vegur er þröngur.

Hálka og éljagangur er á Steingrímsfjarðarheiði.

Á Norðurlandi er hálka og hálkublettir. Hálka og skafrenningur er á Vatnsskarði og á Öxnadalsheiði.

Á Norðausturlandi og Austurlandi er hálka og hálkublettir víðast hvar. Snjóþekja og éljagangur er á Breiðdalsheiði.

Á Suðausturlandi eru hálkublettir og éljagangur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert