Fagridalur er farartálmi
Á milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða eru tæpir 34 km og liggur leiðin að mestu um Fagradal, hæst í 350 metrum y.s.m. Veturinn hefur verið heldur þungur á þessum slóðum og dalurinn því stundum torfarinn vegna fannfergis og illviðra. Að öllu jöfnu er Fagradal haldið opnum milli kl. 07 og 23 yfir veturinn. Á milli 350 og 500 bílar hafa farið um dalinn á sólarhring undanfarið.
Sveitarstjórnarmenn á Fljótsdalshéraði og víðar hafa ítrekað kallað eftir bættri vetrarþjónustu Vegagerðarinnar á leiðinni þar sem umferð um Fagradal er mikil og fólk sækir þjónustu og vinnu af Héraði á firði og öfugt. Til dæmis vinna um 100 manns af Héraðinu í álveri Alcoa Fjarðaáls. Fyrirtækið lagði mikið upp úr því á undirbúningstíma verksmiðjunnar að samgöngur yrðu færðar til viðunandi horfs til að skapa stærra og tryggara atvinnusvæði.
„Verstar fyrir okkur eru ferðirnar fjórar um Fagradal sem tengjast vaktaskiptum í álverinu,“ segir Guðmundur Bjarnason, verkefnisstjóri hjá Alcoa Fjarðaáli. „Þegar færð er slæm geta lokast af algerir lykilstarfsmenn, en mest bitnar þetta á vaktaskiptum og hefur gerst nokkrum sinnum í vetur. Ef við komum ekki fólkinu á milli þarf að boða menn út á aukavaktir úr nágrenni álversins og koma fólki í gistingu.“
Bloggað um fréttina
-
Hafliði Hinriksson Það er ekki verið að semja við réttann aðila! -
Þorsteinn Valur Baldvinsson Hjelm Hvað skal gera
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 11. september 2008, Innlent Vegur um Fagradal opnaður á ný
- Þriðjudagur, 5. febrúar 2008, Innlent Björgunarsveitir í stappi við ökumenn
- Miðvikudagur, 14. mars 2007, Innlent Veittu bifreið eftirför í tvær klukkustundir
- Sunnudagur, 8. mars 2009, Innlent Mjög slæmt veður á Akureyri
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































