Eldsneyti hækkar mikið

Eldsneyti hefur hækkað umtalsvert í verði í dag. Hjá Skeljungi hefur verð á bensínlítra hækkað um 3,40 krónu og er algengt verð í sjálfsafgreiðslu 139,20 krónur. Dísilolía hefur hækkað um 3,90 krónur lítrinn og kostar 143,30 krónur í sjálfsafgreiðslu.

Með þjónustu er lítraverð á bensíni 144,20 krónur en á dísilolíu  148,30 og hefur aldrei verið hærra hér á landi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert